Sjónum beint að VMA í Kerfinu á Rás 1
12.04.2026
Í þessum þætti af Kerfinu er m.a. fjallað um mikinn húsnæðisvanda VMA og hversu brýnt er að bæta þar úr sem allra fyrst.
Sjöunda apríl sl. var sendur út á Rás 1 fimmti þáttur í þáttaröð Rúv sem nefnist Kerfið. Í þættinum er sjónum beint að skólakerfinu, ekki síst framhaldsskólum landsins, og er þessi fimmti þáttur helgaður VMA að stærstum hluta. Umsjón með þættinum hefur Guðrún Hálfdánardóttir.
Viðmælendur í þættinum eru Benedikt Barðason skólameistari, Ásta F. Flosadóttir aðstoðarskólameistari, Gunnar Möller kennari vélstjórnargrreina og Jóhann Gunnar Jóhannsson kennari í byggingadeild. Einnig er í þættinum rætt við nokkra nemendur skólans.
Þá er í þessum þætti rætt við skólakonurnar Elsu Eiríksdóttur og Kristjönu Stellu Blöndal.