Fara í efni

Síðustu sýningar á Ronju um helgina

Uppfærsla Leikfélags VMA á Ronju ræningjadóttur hefur fengið afbragðs fínar viðtökur. Um helgina ver…
Uppfærsla Leikfélags VMA á Ronju ræningjadóttur hefur fengið afbragðs fínar viðtökur. Um helgina verða síðustu sýningar á verkinu í Gryfjunni í VMA.

Ronja ræningjadóttir í uppfærslu Leikfélags VMA hefur fengið afar góðar viðtökur og fína aðsókn.

Ronja hefur verið sýnd tvær síðustu helgar en um komandi helgi eru síðustu sýningar á þessum vinsæla söngleik í Gryfjunni í VMA. Því er mikilvægt að undirstrika að þeir sem ætla að sjá leikritið fá aðeins tækifæri til þess um helgina.

Sýnt verður á morgun, laugardaginn 28. febrúar, og á sunnudag, 1. mars, í Gryfjunni. Báðar sýningarnar hefjast kl. 14.00.

Miðasala er hér.