Fara í efni

Síðustu sýningar á Litlu hryllingsbúðinni um helgina

Síðustu sýningar verða í kvöld og annað kvöld.
Síðustu sýningar verða í kvöld og annað kvöld.

Um helgina verða síðustu sýningar á uppfærslu Leikfélags VMA á söngleiknum Litlu hryllingsbúðinni. Sýningarnar verða í kvöld, 4. nóvember, og annað kvöld, 5. nóvember, kl. 20, bæði kvöldin, í Samkomuhúsinu. Hryllingsbúðin hefur verið sýnd tvær síðustu helgar og fengið glimrandi fínar viðtökur. Nú er sem sagt síðasta tækifærið til að sjá sýninguna!

Verð aðgöngumiða er kr. 3.490 en Þórdunu- og Huginsfélagar (nemendafélög VMA og MA) fá miðann á 3000 kr. gegn framvísun nemendaskírteina í miðasöluninni í Menningarhúsinu Hofi. Miðar eru sem sagt seldir í Hofi og einnig á netinu á mak.is og tix.is.