Fara í efni

Síðustu sýningar á Bót og betrun um næstu helgi

Gleðin er við völd í uppfærslunni á Bót og betrun.
Gleðin er við völd í uppfærslunni á Bót og betrun.

Síðustu sýningar á farsanum Bót og betrun í uppfærslu Leikfélags VMA verða um næstu helgi - föstudaginn 24. og laugardaginn 25. febrúar - kl. 20:00 bæði kvöldin í Gryfjunni í VMA.

Þessi bráðfjörugi farsi hefur verið sýndur þrjár síðustu helgar - samtals sex sýningar - og hefur fengið frábæra dóma áhorfenda, sem hafa skemmt sér konunglega. Vel er vandað til uppfærslunnar í hvívetna og því er enginn svikinn af því að bregða sér í leikhúsið og njóta stundarinnar. 

Miðasala á þessar síðustu sýningar er hér á Tix.is.