Fara í efni

Síðustu sýningar á 101 Reykjavík

Síðustu forvöð að drífa sig á 101Reykjavík.
Síðustu forvöð að drífa sig á 101Reykjavík.

Síðustu sýningar Yggdrasils – leikfélags VMA á 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar verða í kvöld, fimmtudaginn 6. nóvember, kl. 20, annað kvöld kl. 20 og síðasta sýningin verður nk. laugardagskvöld, 8. nóvember, kl. 20. Sýnt er í Rýminu, Hafnarstræti 57 (gömlu Dynheimar).

Almennt verð á sýninguna er kr. 2500 en félagar í nemendafélögum VMA og MA fá miðann á 2000 kr. Þá miða er ekki hægt að kaupa í gegnum vefinn, heldur þarf að kaupa þá í miðasölu Menningarhússins Hofs. Síminn þar er 450 100. Einnig er hægt að kaupa miða í Samkomuhúsinu sýningardagana og hefst miðasalan þremur tímum fyrir sýningar. Þá verða miðar seldir við innganginn í Rýminu hálftíma fyrir sýningu.
Á vefnum er miðasala á www.leikfelag.is og www.midi.is