Fara í efni

Sex þreyttu sveinspróf í vélvirkjun

Að þessu sinni þreyttu sex sveinspróf í vélvirkjun. Mynd: Hörður Óskarsson.
Að þessu sinni þreyttu sex sveinspróf í vélvirkjun. Mynd: Hörður Óskarsson.

Sex þreyttu sveinspróf í vélvirkjun um síðustu helgi í húsakynnum málmiðnbrautar VMA – þar af tveir sem lærðu vélvirkjun í VMA og fjórir sem lærðu í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki.

Sveinspróf í vélvirkjun skiptist í fjóra þætti: skriflegt próf, smíðaverkefni, vélapróf og suðuverkefni. Hver þáttur er metinn sérstaklega. Bóklega prófið var sl. föstudag, 18. september, en verklega prófið 19. og 20. september.

Í verklega prófinu var m.a. smíðaverkefni, prófað í slitmælingu og bilanaleit og í algengum suðuaðferðum á járni, kopar, áli, steypujárni og ryðfríu stáli.