Fara í efni

Samstarfssamningur um tæknifræði á háskólastigi

Að lokinni undirritun samstarfssamningsins.
Að lokinni undirritun samstarfssamningsins.
Í dag rituðu Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA, Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis í Reykjanesbæ, og Erla Björg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar, undir samstarfssamning í húsakynnum VMA um að hefja tækninám á háskólastigi á Akureyri frá og með næsta skólaári.

Í dag rituðu Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA, Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis í Reykjanesbæ, og Erla Björg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar, undir samstarfssamning í húsakynnum VMA um að hefja tækninám á háskólastigi á Akureyri frá og með næsta skólaári.

Samningurinn felur í sér að bjóða upp á nám í tæknifræði til BSc-gráðu í nafni Keilis þar sem hluti námsins fer fram á Akureyri. Einkum er horft til fyrsta og seinni hluta þriðja árs en annað árið og fyrri hluti þriðja árs mun fara fram í höfuðstöðvum Keilis á Keflavíkurflugvelli. Keilir býður nemendum upp á húsnæði á hagstæðum leigukjörum.

Á fundi með fréttamönnum í VMA í dag kom fram að lengi hafi verið horft til þess að hefja slíkt nám á Akureyri, enda talin mikil þörf á slíku námi. Fram kom að til þessa hafi nemendur á Norðurlandi annað hvort þurft að fara í slíkt nám til Reykjavíkur eða jafnvel erlendis, sérstaklega hafa margir farið í tækninám til Danmerkur.

Hjalti Jón Sveinsson segir að ef nemendafjöldi á Akureyri verði nægjanlegur sé stefnt að því að hluti staðlota og verklegrar kennslu fari fram við VMA eftir nánara samkomulagi. Þá sé stefnt að því að kennslan á Akureyri verði í höndum heimamanna, enda uppfylli þeir skilyrði til kennslu á háskólastigi.

Um er að ræða þriggja ára nám til BSc-gráðu í tæknifræði og til þess að fá löggildingu sem tæknifræðingur bætist hálft ár við. Lokaverkefni nemenda í náminu er gert ráð fyrir að þeir vinni í samstarfi við fyrirtæki á Norðurlandi, sem og þriggja vikna verkefni nemenda eftir því sem við verður komið.

Fram kom á fréttamannafundinum í dag að í samstarfi við Símey verði skipulagt undirbúningsnám fyrir þá sem hyggja á tæknifræðinám en uppfylla ekki inntökuskilyrði.

Við það er miðað að hefja námið í haust, náist nægilegur fjöldi nemenda. Allar frekari upplýsingar veitir Keilir, VMA og Símey. Hægt er að sækja um námið á heimasíðu Keilis, www.keilir.net

„Ég lít svo á að þessi samstarfssamningur sé mikið fagnaðarefni. Ég hef löngum verið talsmaður þess að boðið verði upp á tækninám á háskólastigi hér á Akureyri; hvort sem er fyrir þá nemendur sem lokið hafa almennu stúdentsprófi, stúdentsprófi að loknu iðnnámi, fullnaðarnámi í vélstjórn eða þá sem lokið hafa sveinsprófi í iðngrein og hafa hug á frekara tækninámi. Þetta er því mikilvægt skref fyrir allt þetta svæði og atvinnulífið hér, sem lengi hefur kallað eftir aukinni tæknimenntun,“ segir Hjalti Jón Sveinsson.