Samstarf Akureyrar og Færeyja í myndlist í þriðjudagsfyrirlestri
17.03.2026
Í þriðjudagsfyrirlestrinum í dag er sagt frá sýningu akureyrskra myndlistarmanna á list sinni í Þórshöfn í Færeyjum.
Þriðjudagsfyrirlestur dagsins í Listasafninu á Akureyri kl. 16.15 í dag verður með eilítið öðru sniði en undanfarna þriðjudaga. Að þessu sinni munu myndlistarmennirnir Brynhildur Kristinsdóttir og Kristján Helgason kynna JÁ JÁ sýningu Myndlistarfélagsins á Akureyri í Gallerí Havnará í Þórshöfn í Færeyjum.
Í fyrirlestri sínum fjalla Brynhildur og Kristján einnig um samstarf Myndlistarfélagsins við myndlistarmenn í Færeyjum, nánar tiltekið Føroysk Myndlistafólk, sem eru sambærileg samtök og Samband íslenskra myndlistarmanna á Íslandi.
Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn í dag og er enginn aðgangseyrir.
Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samstarfsverkefni VMA, Myndlistarfélagsins á Akureyri Listasafnsins á Akureyri og Gilfélagsins.