Sagði frá starfi leiðsögumannsins
Eins og jafnan áður hefur Ólafur H. Björnsson kennari boðið upp á útivistaráfanga núna á haustönn á íþróttabraut. Á fyrri hluta annarinnar hafa nemendur notið útivistar á ýmsan hátt, gengið á fjöll og farið í hina ýmsu leiðangra, en núna þegar veturinn er genginn í garð fá nemendur m.a. fræðslu gestafyrirlesara um eitt og annað sem lýtur að útivist og náttúruskoðun.
Í dag heimsótti Stefán Gunnarsson leiðsögumaður nemendur og fræddi þá um starf leiðsögumannsins, hvað þurfi að hafa að leiðarljósi í starfinu, út á hvað það gengur í stórum dráttum og áskoranir sem starfinu fylgja.
Í næstu viku verður Gunnar Már Gunnarsson formaður Ferðafélags Akureyrar með kynningu fyrir nemendur, síðan kemur í heimsókn Anna Sigrún Rafnsdóttir, sem er mikill náttúruunnandi og hefur m.a. leiðsagt oft fyrir Ferðafélag Akureyrar, og þann 1. desember kemur Lilja Stefánsdóttir, sem er Akureyringur en hefur lengi búið á höfuðborgarsvæðinu, og segir nemendum frá fjölbreyttum gönguferðum sínum um Ísland og á krefjandi slóðum víða erlendis.