Fara í efni

Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu?

 
Opnað hefur verið fyrir umsóknir jöfnunarstyrks fyrir námsárið 2021-2022 og eru nemendur hvattir til að sækja um strax fyrir báðar annir námsársins. Umsóknarfrestur haustannar er til og með 15. október n.k. og vorannar til og með 15. febrúar n.k.
 
Þó er hægt er að sækja um jöfnunarstyrk haustannar frá 15. október til 15. febrúar n.k. en þeir nemendur sem það gera fá 15% skerðingu á styrknum.

Sótt er um á MITT LÁN og island.is með rafrænum skilríkjum.
 
Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.menntasjodur.is

Menntasjóður námsmanna
Námsstyrkjanefnd