Fara í efni

Rúnar Eff og Magni í stuði

Rúnar Eff og Magni í góðum gír í D-09.
Rúnar Eff og Magni í góðum gír í D-09.

Dagurinn byrjaði heldur betur á skemmtilegum hátt á D-gangi skólans því góðir tónlistargestir, Rúnar Eff og Magni, mættu á svæðið og komu nemendum og starfsmönnum heldur betur í gírinn með því að spila og syngja nokkur lög - þar á meðal nokkur jólalög. Það er algjörlega leyfilegt þegar rétt um fimm vikur eru til jóla! Og einn af nemendunum, Arnar, lagði þeim félögum lið á bassa í nokkrum laganna.

Takk Rúnar Eff og Magni fyrir að koma og gleðja okkur öll á D-ganginum!