Fara í efni

Ræðir um myndlist og myndlistarkennslu

Rósa Kristín Júlíusdóttir.
Rósa Kristín Júlíusdóttir.

Í dag, 22. febrúar kl. 17-17.40, heldur Rósa Kristín Júlíusdóttir myndlistarkona þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Myndlist og myndlistarkennsla. Í fyrirlestrinum fjallar Rósa um nám sitt, myndlist og myndlistarkennslu síðustu fimm áratugi.

Rósa stundaði nám við Brera listaakademíuna í Mílanó á Ítalíu og að því loknu starfaði hún í tvö ár sem aðstoðarkennari í háskólanum í Bologna á Ítalíu. Síðan lá leiðin til New York í Bandaríkjunum þar sem Rósa vann með hópi grafíklistamanna. Eftir heimkomu til Íslands fór hún fljótlega að skapa textílverk, m.a. úr grisjum, og er enn að þróa slík verk. Framhaldsnámi lauk Rósa í Finnlandi.

Rósa Kristín er ein af stofnendum Rauða hússins, listagallerís sem rekið var á Akureyri í byrjun níunda áratugarins. Hún hefur tekið þátt í margvíslegu samstarfi í listinni, bæði á Norðurlöndunum og einnig á Akureyri, s.s. í gegnum Samlagið, sem lengi var starfrækt í Listagilinu.

Rósa hefur lengi starfað með Karli Guðmundssyni að listsköpun hans en hér má sjá þau á opnun sýningar Karls í Listasafninu á Akureyri í desember sl.