Fara í efni

Rósa Kristín með þriðjudagsfyrirlestur

Rósa Kristín og Karl Guðmundsson.
Rósa Kristín og Karl Guðmundsson.

Rósa Kristín Júlíusdóttir, myndlistarmaður og kennari, heldur fyrirlestur í dag, þriðjudaginn 18. nóvember, kl. 17 í Ketilhúsinu sem hún nefnir Himintjöld og dansandi línur: Samvinna í listum og innsetning sem listræn menntunarrannsókn

Fyrirlesturinn er í röð svokallaðra Þriðjudagsfyrirlestra sem efnt er til á þriðjudagseftirmiðdögum á haustönní Ketilhúsinu á vegum listnámsbrautar VMA, Listasafnsins á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri.

Í fyrirlestrinum ræðir Rósa Kristín um rannsókn sem hún gerði í samnorrænu og baltnesku verkefni og fjallar um listræna samvinnu hennar og Karls Guðmundssonar, mál- og hreyfihamlaðs listamanns, og annað tengt samtímalistum og menningu fatlaðra.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn og eru allir velkomnir.