Fara í efni

Ronja er frábær skemmtun!

Leikarar og leikstjórnn Pétur Guðjónsson að lokinni frumsýningu á Ronju ræningjadóttur í gær.
Leikarar og leikstjórnn Pétur Guðjónsson að lokinni frumsýningu á Ronju ræningjadóttur í gær.

Leikfélag VMA frumsýndi í gær, laugardag, Ronju ræningjadóttur í Gryfjunni í VMA og önnur sýning var í dag. Fullt var á báðar sýningar.

Óhætt er að segja að vel hafi til tekist og það voru ánægðir leikhúsgestir sem yfirgáfu Gryfjuna. Leikgleðin skkín af andlitum leikaranna og ljóst er að samstarfið við Brekkuskóla hefur tekist ljómandi vel og nemendur þaðan sem taka þátt í sýningunni standa sig frábærlega.

Nú kemur nokkurra daga kærkomin pása hjá leikurum og öðrum aðstandendum sýningarinnar, enda er að baki löng og ströng törn. En aftur verður stigið á sviðið í Gryfjunni um næstu helgi, laugardaginn 21. og sunnudaginn 22. febrúar. Einnig verður sýnt um aðra helgi. 

Nú er um að gera að kaupa miða, hér er hlekkur á miðasöluna. Athugið að sýningin nk. laugardag verður kl. 17 en sýningin á sunnudag kl. 14. Lengd sýningarinnar er með hléi um tvær klukkustundir.