Ritlistakvöld Ungskálda á Kaffi Lyst nk. miðvikudagskvöld
Næstkomandi miðvikudag, 18. mars, býðst ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist að mæta á veitingastaðinn Lyst í Lystigarðinum og taka þátt í ritlistakvöldi með rithöfundinum Margréti S. Höskuldsdóttur, sem nýverið hlaut Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun fyrir bókina Lokar augum blám. Þátttaka á ritlistakvöldinu er ókeypis en þess er óskað að þátttakendur skrái sig og eru ókeypis veitingar fyrir skráða gesti.
Ritlistakvöldið á Lyst er liður í fjölbreyttri dagskrá árið um kring á vegum Ungskálda, sem hefur það m.a. að markmiði að ýta undir og hvetja ungt fólk til skapandi hugsunar, að skrifa og koma á framfæri verkum sínum, hvort sem er ljóðum, smásögum, prósum eða öðru
Verkefnið Ungskáld var sett á stofn árið 2013 og er það eina sinnar tegundar á Íslandi. Í nefndinni sem heldur utan um verkefnið eru fulltrúar Akureyrarbæjar, Ungmennahússins, VMA, MA og Amtsbókasafnsins.
Sem fyrr segir verður Margrét S. Höskuldsdóttir gestur ritlistakvöldsins á Lyst nk. mðvikudagskvöld. Rithöfundaferill hennar er ekki langur, fyrsta bókin, Dalurinn, kom út fyrir fjórum árum, önnur bókin, Í djúpinu, kom út árið 2024 og hefur þýðingarrétturinn á henni nú þegar verið seldur til Þýskalands. Þriðja bókin, Lokar augum blám, kom síðan út á síðasta ári.
Margrét er fædd 29. nóvember árið 1972 á Þingeyri í Dýrafirði en flutti til höfuðborgarinnar á unglingsárum. Hún lauk B.ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og hefur lengst af starfað sem grunnskólakennari. Margrét er einnig með meistaragráðu í listfræði frá Háskólanum í Edinborg.
Í stórum dráttum er umfjöllunarefni nýjustu bókar Margrétar, Lokar augum blám, þetta:
Á miðju sumri hverfa tveir ungir kajakræðarar sporlaust í Dýrafirði. Rannsóknarlögreglumaðurinn Bergur er fluttur til Flateyrar og tekur málið að sér, ásamt fyrrverandi samstarfskonu sinni, Rögnu, sem er kölluð vestur. Á sama tíma vinnur par að endurbótum á gömlu húsi á Flateyri. Eftir ógæfusöm ár í höfuðborginni þrá þau kyrrlátt líf á fallegum stað en húsið reynist eiga sér nöturlega sögu.