Fara í efni

Ritlistakeppni Ungskálda - úrslit

Úrslit í Ritlistakeppni Ungskálda 2018 verða kunngjörð á Amtsbókasafninu á Akureyri fimmtudaginn 6. des. kl. 17:00. Höfundar lesa verkin, tónlistaratriði, kakó og smákökur verða í boði. Allir velkomnir. 

 

Alls bárust 85 verk í keppnina sem er tvöfalt meira en í fyrra. Engar hömlur voru settar á hvers konar textum var skilað inn, hvorki varðandi efnistök né lengd. Textarnir þurftu að vera á íslensku. Þriggja manna dómnefnd hefur verið að fara yfir verkin og tilkynnir úrslit ásamt umsögn á fimmtudaginn og hljóta þrjú efstu sætin viðurkenningar og peningaverðlaun.

Ungskáld er verkefni á Akureyri sem gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.
Verkefnið er búið að vera til í nokkur ár og er það eina sinnar tegundar á landinu. Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Akureyrarstofu, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu. Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

 

Að verkefninu Ungskáld, sem mun vera einstakt á öllu landinu, standa Akureyrarstofa, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg, Amtbókasafnið, Sóknaráætlun Norðurlands eystra og N4.