Fara í efni

Ritlistakeppni Ungskálda 2026

Nú er tækifærið fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á að skrifa, hvort sem er ljóð, prósa, smásögur eða annað, að setjast við tölvuna og taka þátt í ritlistakeppni Ungskálda 2026. Um er að ræða árlega keppni ungskálda á Norðausturlandi og er þetta verkefni styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Verkefnið Ungskáld hefur það að markmiði að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Það hófst árið 2013 og er eina sinnar tegundar á landinu. Veitt eru peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í ritlistakeppninni. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku og frumsamdin hugverk. Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Akureyrarbæ, VMA, MA, Ungmennahúsinu og Amtsbókasafninu.

Skilafrestur á efni er til miðnættis 1. nóvember nk. Efni skal skila rafrænt.

Við þetta er svo því að bæta að í kvöld, miðvikudaginn 7. október, kl. 20 verður ritlistakvöld fyrir ungskáld á Kaffi Lyst í Lystigarðinum á Akureyri. Þar mun Hildur Knútsdóttir rithöfundur gefa góð ráð við skrif og segja frá verkum sínum. 

Til glöggvunar er vert að rifja upp vinningsverk Mars Baldurs í Ungskáld 2025.