Reykjafell gefur rafdeild VMA tólf iðntölvur
Það er VMA ómetanlegt þegar atvinnulífið sýnir skólanum stuðning í verki. Skólanum er afar mikilvægt að vera í stakk búinn til að nota nýjasta tæknibúnað sem völ er á í verklega kennslu og ekki síður er það atvinnulífinu mikilvægt.
Í gær komu tveir fulltrúar fyrirtækisins Reykjafells, Aðalsteinn Ernir Borgþórsson rekstrarstjóri og Heiðar Örn Ómarsson sölumaður, færandi hendi í VMA og færðu rafdeild skólans að gjöf tólf iðntölvur og íhluti þeim tengdar. Auk Reykjafells stendur iðntölvuframleiðandinn Eaton að gjöfinni.
Í innrömmuðu gjafabréfi sem fylgdi með gjöfinni segir:
Í tilefni af 70 ára afmæli Reykjafells gefum við Verkmenntaskólanum á Akureyri gjöf sem styður við rafiðnir á Íslandi.
Iðntölvurnar tólf koma sér afar vel og verða teknar strax í notkun. Þær nýtast í kennslu rafiðnnema frá fjórðu önn og til námsloka.
Verkmenntaskólinn þakkar Reykjafelli af heilum hug fyrir þessa góðu gjöf.
Á meðfylgjandi mynd, sem var tekin við afhendingu gjafarinnar í gær, eru frá vinstri: Haukur Eiríksson kennari í rafiðngreinum, Óskar Ingi Sigurðsson kennari í rafiðngreinum, Aðalsteinn Ernir Borgþórsson rekstrarstjóri Reykjafells, Friðrik Óli Atlason kennari í rafiðngreinum, Arndís Helgadóttir kennari í rafiðngreinum, Andrea Margrét Þorvaldsdóttir kennari í rafiðngreinum, Heiðar Óli Ómarsson sölumaður hjá Reykjafelli og Benedikt Barðason skólameistari VMA.