Fara í efni

Rán Flygering með þriðjudagsfyrirlestur

Rán Flygering.
Rán Flygering.

Þriðjudagsfyrirlesturinn í Listasafninu á Akureyri í dag, þriðjudaginn 26. október kl. 17-17.40, verður í höndum Ránar Flygenring, teiknara. Yfirskrift hans er Listin að móðga, gleðja og greina með teikningum. Rán segir frá fjölbreyttum ferli sínum, þrátt fyrir að vera ung að árum, í námi og starfi allt frá því að hún hélt fyrst á blýanti og til dagsins í dag. Í lok fyrirlestursins svarar Rán spurningum gesta. 

Rán Flygenring er fædd 1987 í Osló en uppalin í Reykjavík. Eftir útskrift af hönnunarbraut Listaháskóla Íslands 2009 hóf hún feril sinn sem grafískur hönnuður. Síðan gerðist hún hirðteiknari Reykjavíkurborgar undir hatti sumarstarfa Hins hússins. Frá 2012 til 2019 flakkaði Rán um heiminn og sinnti fjölbreyttum teikniverkefnum m.a. í Þýskalandi, Japan, á Ítalíu og Nýja-Sjálandi. Hún sneri aftur til Íslands 2018 þar sem hún býr nú og starfar sjálfstætt við ýmis konar verkefni á sviði myndlýsinga, hönnunar, bókaskrifa og myndrænnar greiningar. 

Rán hefur gefið út á annan tug bóka á Íslandi og í Þýskalandi, bæði ein og í samstarfi við aðra höfunda, og hafa bækurnar verið verið þýddar á fjölda tungumála. Hún hefur látið til sín taka á sviði snarteikninga á ráðstefnum og fundarhöldum sem og notkun myndrænnar greiningar í stefnumótun og jafnréttismálum. Þá hefur hún málað bæði fjallgöng og veggmyndir, teiknað frímerki og bjórdósir, stofnað lundahótel, teiknað borgarlausnir og leikstýrt myndböndum. 

Meðal bóka sem hún hefur sent frá sér er Vigdís – bókin um fyrsta kvenforsetann og hún myndskreytti metsölubækur Hjörleifs Hjartarsonar um fugla og hesta.

Rán hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín; Barnabókaverðlaun Þýskalands í tvígang, Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í flokki myndlýsinga í þrígang og tvær tilnefningar til ALMA-verðlaunanna.

Sem fyrr eru þriðjudagsfyrirlestrarnir samstarfsverkefni VMA, Listasafnsins á Akureyri og Gilfélagsins. Aðgangur er ókeypis.