Fara í efni

Rakavarnarlag frá ýmsum hliðum

Agnar Snædahl fræðir nemendur í húsasmíði um rakavarnarlag og ýmislegt er lýtur að raka- og mygluvan…
Agnar Snædahl fræðir nemendur í húsasmíði um rakavarnarlag og ýmislegt er lýtur að raka- og mygluvandamálum í húsum.

Einn af mikilvægum þáttum í frágangi bygginga er svokallað rakavarnarlag. Sé vel og rétt frá þessum hlutum gengið í byggingum minnka mjög líkur á að húsnæði mygli, eins og því miður eru mörg dæmi um í byggingum hér á landi, jafnvel í nýlegum húsum.

En hvað er í stuttu máli átt við með rakavarnarlagi? Stutta skilgreiningin er sú að það er filma eða lag sem sett er hitamegin í byggingum í þeim tilgangi að fyrirbyggja að vatnsgufan eða rakinn úr inniloftinu, t.d. gufa frá eldhúsi eða baðherbergi, leiti inn í veggi, loft eða golf, þéttist þar og myndi raka sem síðan getur skapað myglu og valdið þannig miklu eigna- og heilsufarstjóni.

Í dag hefur Agnar Snædahl, sem er húsasmiður, tækni- og verkfræðingur, verið með námskeið í VMA fyrir nemendur í húsasmíði, bæði nemendur á lokaönn og í kvöldskólanum í húsasmíði, þar sem hann hefur farið yfir fjölmargt er lýtur að rakavarnarlaginu, gildi þess og frágangi, loftskipti í húsum o.s.frv. 

Agnar Snædahl er með áratuga reynslu og þekkingu á þessu sviði. Hann hefur í átta ár kennt eðlisfræði bygginga í Háskólanum í Reykjavík, stofnaði á sínum tíma Betri byggingar og hefur lengi starfað við burðarþolshönnun bygginga.