Fara í efni

Ragnheiður með þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu

Ragnheiður Björk Þórsdóttir.
Ragnheiður Björk Þórsdóttir.

Í dag, þriðjudaginn 20. október, kl. 17 heldur Ragnheiður Björk Þórsdóttir textíllistamaður og kennari við VMA fyrirlestur í Ketilhúsinu í Listagilinu undir yfirskriftinni Örlagavefur. Þar fjallar hún um sögu og hlutverk vefnaðar og myndvefnaðar sem og þær tæknibreytingar sem hafa átt sér stað síðan á miðöldum. Sýning hennar, Rýmisþræðir, hefur staðið yfir í Ketilhúsinu síðan í september og mun Ragnheiður tengja hana við fyrirlesturinn. 

Eftir brautskráningu frá textíldeild Myndlista- og handíðaskóli Íslands 1984 stundaði Ragnheiður meistaranám í textíl við John F. Kennedy University frá 1984-1985. Hún lauk uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ 1990 og lauk M.ed. námi frá Háskólanum á Akureyri 2009. Samhliða því að starfa sem textíllistamaður hefur Ragnheiður verið kennari í Verkmenntaskólanum á Akureyri í 27 ár og kennt vefnað, listasögu og hönnunar- og textílsögu. Eftir að hafa tekist á við erfið veikindi á síðasta ári hefur Ragnheiður verið í leyfi frá kennslu í VMA en vonast til þess áður en langt um líður að geta byrjað að kenna á ný. Hún er formaður Félags íslenskra vefnaðarkennara og félagi í Textílfélagi Íslands og SÍM. Ragnheiður var bæjarlistamaður á Akureyri 2014 - 2015.

Fyrirlesturinn er fjórði í röð fyrirlestra í Ketilhúsinu á þriðjudögum í vetur.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri.

Aðgangur á fyrirlesturinn í dag er ókeypis.