Fara í efni

Ræsidagur á vélstjórn

Wichman vélin úr Snæfellinu EA 740 er stærsta vélin í vélasal vélstjórnarbrautar. Til stendur að fja…
Wichman vélin úr Snæfellinu EA 740 er stærsta vélin í vélasal vélstjórnarbrautar. Til stendur að fjarlægja hana og rýma fyrir öðrum vélbúnaði sem nýtist betur til kennslu í dag.

Í vélasal vélstjórnarnámsins í VMA eru margar og mismunandi vélar, af öllum stærðum og gerðum, sem í gegnum tíðina hafa nýst vel til þess að kenna verðandi vélstjórum og vélvirkjum eitt og annað varðandi virkni og uppbyggingu véla. Hér má sjá nokkrar þeirra. Flestar hafa vélarnar verið færðar skólanum að gjöf í gegnum tíðina. En það er með vélar eins og annað að þær ganga úr sér og úreldast. Véltækni fyrri áratuga er ekki tækni dagsins í dag. Orkugjafarnir taka breytingum og fjölmargt annað breytist í vélbúnaði í tímans rás. Vélstjórnarnámið þarf á hverjum tíma að vera í takti við tímann og því þarf að uppfæra vélbúnaðinn til kennslu. En vandamálið er að til þess að koma nýjum vélbúnaði fyrir þarf að fjarlægja eitthvað af eldri vélbúnaðinum og það er verkefnið sem fyrir liggur að ráðast í á vélstjórnarbrautinni.

Núna á vorönninni verður fjarlægð úr vélasalnum – væntanlega í brotajárn – MWM-vél (Motoren Werke Mannheim). Þessi vél þjónaði sem ljósavél í Sléttbaki EA 304 sem var smíðaður í Noregi árið 1968 og keyptur hingað til lands árið 1973 af Útgerðarfélagi Akureyringa. Fjórtán árum síðar, árið 1987, var Sléttbakur lengdur og honum breytt í frystiskip. Jafnframt var skipt um aðalvél og sett í skipið Bergen vél með ásrafala. Þá var þessi MWM vél fjarlægð og gefin vélstjórnardeild VMA. En nú verður hún sem sagt fjarlægð úr vélasal vélstjórnar og í staðinn kemur vél af sömu gerð, sem hefur verið geymd undanfarin ár í öðrum sal í húsnæði vélstjórnar. Þessi vél er árgerð 1977 og var varaaflsvél á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Stærsta vélin í vélasal vélstjórnardeildar er Wichman, 6 strokka tvígengis díselvél, árgerð 1960. Vélin var aðalvél í Snæfellinu EA 740 sem var smíðað árið 1943 í Skipasmíðastöð KEA. Upprunalega var 434 hestafla Ruston aðalvél í Snæfellinu en henni var skipt úr árið 1962 fyrir þessa Wichman vél. Árið 1974 var Snæfellið tekið af skrá og því sökkt á Grímseyjarsundi 22. september 1978. Wichman fyrirtækið, sem framleiddi þessa vél, var keypt af finnska vélaframleiðandanum Wärtsilä.

Til stendur að fjarlægja einnig þessa stóru Wichman vél úr vélasalnum til þess að rýma fyrir vélbúnaði sem nýtist betur til kennslu nú til dags, m.a. skilvindur og búnað sem nýtist vel í vökvatækniverkefni. Sævar Páll Stefánsson, brautarstjóri á vélstjórn, segir ljóst að það verði bærilega stórt verkefni að fjarlægja þessa stóru Wichman vél en ekki liggi endanlega fyrir hvaða leið verði farin í því. Óhjákvæmilegt sé að skipta út nokkrum af eldri vélunum sem taki mikið pláss og nýtist ekki lengur til kennslu að sama marki og áður. 

Allar þessar vélar eru ekki ræstar á hverjum degi en sl. mánudag ákváðu kennarar vélstjórnar að efna til svokallaðs ræsidags þar sem níu af vélunum í vélasalnum, þar á meðal gamla Wichman vélin, voru settar í gang. Þetta var skemmtileg uppákoma sem vakti ánægju nemenda, kennara og gesta og Sævar Páll segist sjá fyrir sér að slíkur ræsidagur geti orðið árlegur viðburður á vélstjórnarbrautinni.