Fara í efni

Ræðir um vinnuaðferðir við listsköpun

Barbara Bernardi.
Barbara Bernardi.

Í dag, þriðjudaginn 24. janúar, kl. 17-17.40 heldur ítalska listakonan Barbara Bernardi þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni A Poetic Landscape. Í fyrirlestrinum fjallar hún m.a. um vinnuaðferðir sínar við listsköpun og endurreisn tilfinningarýmis með myndum og hljóði.

Barbara Bernardi nam kvikmyndaleikstjórn í Mílanó og lauk MA-gráðu frá Chelsea College of Art and Design í London þar sem vídeólist var hennar megin viðfangsefni. Frá 2008 hefur hún búið og starfað sem listamaður í Berlín. Í gegnum tíðina hefur Bernardi unnið að fjölmörgum vídeóverkefnum, s.s. heimildarmyndinni Ciao Italia í samvinnu við Fausto Caviglia 2010, og hlutu vídeóljóð hennar og ljóðskáldsins Nicolettu Grillo fyrstu verðlaun á Ítölsku bókmenntahátíðinni 2016. Hún dvelur um þessar mundir í gestavinnustofu Gilfélagsins í Kaupvangsstræti.

Þetta er fyrsti þriðjudagsfyrirlestur ársins og verða þeir alla þriðjudaga á sama tíma til 21. mars nk. Aðgangur er ókeypis.