Fara í efni

Punkturinn yfir i-ið hjá 2. bekk í matreiðslu

Matreiðslunemarnir með kennurum sínum og skólameistara VMA. Mynd: Hilmar Friðjónsson.
Matreiðslunemarnir með kennurum sínum og skólameistara VMA. Mynd: Hilmar Friðjónsson.

Það er ekki annað hægt segja en að nemendur í 2. bekk í matreiðslu, sem hafa stundað nám sitt af kappi núna á vorönn, hafi klárað veturinn með glæsibrag. Boðið var til margrétta kvöldverðar í Þrúðvangi - sal matvælabrautar - sl. miðvikudagskvöld og buðu nemendur sínu fólki að koma og njóta matarins. Einnig voru í kvöldverðinum matreiðslumeistarar á Akureyri og einnig af suðvesturhorninu, fulltrúar birgja og samstarfsfyrirtækja matvælabrautar, skólameistari VMA og fleiri góðir gestir.

Í vetur hafa sjö nemendur stundað nám í 2. bekk í matreiðslu. Allir starfa þeir á veitingahúsum og eru þar á námssamningum. Til þess að geta farið í sveinspróf í matreiðslu þurfa þeir hins vegar að ljúka 3. bekknum og segir Benedikt Barðason skólameistari VMA að eindregið sé stefnt að því að þessi öflugi nemendahópur geti lokið við þriðja bekkinn á vorönn 2027 og fari þá í beinu framhaldi í sveinspróf og fái þannig réttindi sem matreiðslumenn.

Þeir gestir sem nutu matarins sl. miðvikudags lýstu allir mikilli ánægju og aðdáun á gæði matarins hjá nemunum og voru sammála um að vænta mætti mikils af þessum matreiðslumönnum í framtíðinni.

Meðal þeirra sem var í matarveislunni sl. miðvikudagskvöld var Þórir Erlingsson, forsti Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins. Hann lýsti mikilli ánægju með hvernig staðið væri að málum við menntun  matreiðslunemanna í VMA og hældi þeim fyrir frábæran mat. Þá upplýsti hann að á næsta ári, nánar tiltekið í apríl 2027, yrði Norræna nemakeppnin í matreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta skipti. Þessi keppni er fastur liður og þá koma saman nemendur í matreiðslu og framreiðslu frá öllum Norðurlöndunum og keppa sín í milli.  Í hverju landi er forkeppni fyrir aðalkeppnina. Nemakeppnin í ár var haldin í Svíþjóð fyrir tæpum mánuði.

Norræna nemakeppnin á Akureyri eftir tæpt ár verður stór viðburður og er ljóst að hluti hennar verður í VMA - í húsakynnum matvælabrautar.

Benedikt Barðason skólameistari þakkaði matreiðslunemunum og öllum sem hafi haldið utan um nám þeirra í vetur fyrir afar gott starf. Einnig þakkaði hann birgjum og fyrirtækjum í veitingageiranum fyrir sérlega ánægjulegt samstarf og stuðning við námið í VMA. Þessi stuðningur og samvinna skipti sköpum fyrir skólann. Nauðsynlegt væri að geta haldið úti slíkri menntun í VMA, ekki síður en á höfuðborgarsvæðinu, og lagt þannig lóð á vogarskálarnar að efla fagmenntun fólks í veitingageiranum hér nyrðra. Einnig þakkaði hann Klúbbi matreiðslumeistara fyrir þann stuðning og áhuga sem hann sýndi á náminu í VMA og þá ákvörðun að Norræna nemakeppnin verði á Akureyri á næsta ári.