Fara í efni

Prófa eitt og annað í NÁSSI

Nemendur í NÁSSI í matreiðslu hjá Ara Hallgrímssyni.
Nemendur í NÁSSI í matreiðslu hjá Ara Hallgrímssyni.

Eins og hefð er fyrir á haustönn er áfanginn NÁSS – náms- og starfsfræðsla í boði núna á haustönn fyrir nýnema á tveimur námsbrautum, starfsbraut og brautabrú. Eins og nafn áfangans gefur til kynna fá nemendur að kynnast einu og öðru sem ekki er í boði í öðrum áföngum.

Kennt er tvisvar í viku og er nemendum á starfsbraut og brautabrú skipt í fjóra hópa sem fá að spreyta sig í ákveðin mörg skipti í matreiðslu, framreiðslu, á listnámsbraut, málmiðnbraut, í bifvélavirkjun og Fab Lab.

Þess eru mörg dæmi að nemendur hafi fundið sína fjöl í námi með þessum kynningum á ólíkum námsbrautum - og það er sannarlega tilgangurinn með þessum áfanga.

Þessar myndir voru teknar af nemendum í NÁSS-áfanganum í liðinni viku á listnámsbraut og málmiðnbraut.