Fara í efni

Próftaka utan auglýsts prófstaðar og frestun prófa

Áfangastjórar geta leyft nemanda að þreyta próf í öðrum skóla eða skólastofnun, sendiráðum eða samþykktum stöðum, þó ekki í nærumhverfi skólans. Þessi próf eru tekin á auglýstum próftíma.

Hver nemandi getur að hámarki sótt um að flytja tvö próf. 

Kostnaður við próftöku utan auglýsts prófstaðar er kr. 5000-  á próf og greiðist við afhendingu umsóknar. Annar kostnaður sem fellur til á próftökustað er ekki innifalinn í þessu gjaldi.

Þeir nemendur sem vilja nýta sér þennan rétt þurfa að skrá sig og greiða með því að fylla út umsóknina hér að ofan eða skrá sig og greiða á skrifstofu skólans í síðasta lagi mánudaginn 3.maí.

Nemandinn þarf sjálfur að fá leyfi til próftöku hjá viðkomandi skóla (stofnun).

Nemandi sem tekur próf í öðrum skóla hefur ekki aðgang að kennara og eigi hann rétt á að fá prófið lesið inn á hljóðskrá er í flestum tilfellum ekki hægt að verða við því.

Frestun prófa

Nemendum sem hafa erfiða próftöflu gefst tækifæri til að fresta einu prófi til sjúkraprófa. Ekki er þó hægt að fresta verklegum prófum. Þessi frestun hefur engin áhrif á rétt nemandans til sjúkraprófa í öðrum greinum. Nemendur geta sótt um frestun prófa til mánudagsins 3.maí. Kostnaður við þessi aukapróf er 1000 kr. og greiðist við skráningu.

Sjúkrapróf verða þriðjudaginn 25.maí og miðvikudaginn 26.maí

Próftafla sjúkraprófa verður birt á auglýsingatöflu í norðuranddyri og á heimasíðu skólans.

Sýnidagur námsmats verður fimmtudaginn 27.maí