Pallborðsumræður í Gryfjunni í dag
Nemendafélagið Þórduna stóð í dag fyrir pallborðsumræðum í Gryfjunni með fulltrúum þeirra átta framboða sem bjóða fram framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri 16. maí nk. Fundarstjóri var Birkir Orri Jónsson formaður Þórdunu. Fulltrúar framboðslistanna fluttu stutta framsöguræður og síðan svöruðu þeir já/nei spurningum frá fundarstjóra og loks spurningum sem fundargestir í sal báru upp. Flokkunum gafst einnig kostur á að vera með kynningarbása í Gryfjunni þar sem nemendur gátu leitað svara við þeim spurningum sem á þeim brenna.
Fundurinn tókst mjög vel og var málefnalegur. Fundargestir tóku virkan þátt og beindu fjölda áhugaverðra spurninga til frambjóðenda.
Af hálfu framboðanna tóku þátt í umræðunum í VMA:
Þórhallur Jónsson, oddviti Akureyrarlistans
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, oddviti Viðreisnar
Hlynur Jóhannsson, oddviti Miðflokksins
Jana Salóme Ingbjargar Jósepsdóttir, oddviti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs
Sverre Andreas Jakobsson, 3. sæti á lista Framsóknar
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins
Sindri Sólveigarson Kristjánsson, oddviti Samfylkingarinnar
Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans
Pallborðsumræðurnar í Gryfjunni í dag voru upptaktur að svokölluðum skuggakosningum sem verða á morgun, miðvikudag, í Gryfjunni kl. 09:00–16:00. Nemendur í VMA sem eru fæddir 15. maí 2004 og síðar geta tekið þátt og kosið. Í skuggakosningunum er líkt eftir alvöru kosningum og eru liður í því að ýta undir og hvetja ungt fólk til þess að nýta sér atkvæðisrétt sinn í kjörklefanum, hvort sem er í alþingis-, sveitarstjórna-, forsetakosningum eða þjóðaratkvæðagreiðslum.