Fara í efni

Óvenju stór nýnemahópur - kennsla hefst í dag

Benedikt Barðason skólameistari bauð nýnema velkomna í skólann í Gryfjunni í gær.
Benedikt Barðason skólameistari bauð nýnema velkomna í skólann í Gryfjunni í gær.

Eins og vera ber var eftirvænting og spenningur í lofti þegar nýnemar komu í fyrsta skipti í VMA í gær. Nýnemahópurinn er afar stór, einn sá allra stærsti í sögu VMA, um 270 nemendur sem skiptast á fjölmargar og ólíkar námsbrautir, bæði bóklegar og verklegar. Kennsla hefst hjá nýnemum og öðrum nemendum í dagskóla VMA í dag, þriðjudaginn 18. ágúst, samkvæmt stundaskrá.

Gærdagurinn var sem sagt helgaður nýnemum, bæði nemendum sem koma í skólann beint úr grunnskólanum og einnig eldri nemendum, sem ýmist koma úr öðrum skólum eða eru endurinnritaðir í VMA. Í þessum hópi eru um 100 nemendur. Það er því óhætt að segja að stór hópur nemenda er að hefja nám við skólann núna við upphaf haustannar.

Sem fyrr eru margar verknámsbrautir við skólann yfirfullar og því verður í vetur eins og undanfarin ár mikil áskorun að koma kennslunni fyrir í húsnæði skólans. Eins og áður hefur komið fram er á dagskrá að byggja nýja verknámsálmu við skólann en enn sem komið er liggur ekki fyrir hvenær hún mun rísa.

Í dagskóla í vetur stunda um eitt þúsund nemendur nám við skólann, sem er umtalsverð fjölgun frá síðustu skólaárum. Við bætast nemendur í kvöldskólum í rafiðn og byggingadeild og á verknámsbrautum þar sem nemendur stunda nám með daglegri vinnu. Við bætast svo fjarnámsnemar en ekki liggur fyrir hversu margir þeir verða, enn er hægt að sækja um.