Fara í efni

Óskir um töflubreytingar

Opið verður fyrir óskir um töflubreytingar í INNU frá miðvikudeginum 3. janúar kl.9 til mánudags 8.janúar kl.15:00.

Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel leiðbeiningar um töflubreytingar sem hanga uppi í Gryfjunni, við skrifstofu skólans og eru á heimasíðu skólans.

Útskriftarnemar geta farið til sviðsstjóra og munu fá úrlausn sinna mála á staðnum.

Eftirfarandi þarf að hafa í huga:

- stokkatafla VMA lítur svona út og inn í þessu töflu þurfa flestir áfangar skólans að passa.

- leiðbeiningar varðandi töflubreytingar í INNU.

- stundatöflur áfanga

- beiðnir um töflubreytingar sem byggðar eru á vina- eða kennara-nótunum verða líkast til ekki samþykktar nema mjög góðar ástæður liggi að baki.

- ef nemandi er með 36 tíma í töflu (18 gamlar einingar) eða meira, er ólíklegt að beiðni um viðbót í töflu verði samþykkt.

- nemendur verða að fylgjast með stundatöflunum sínum í INNU til þess að sjá hvort breytingar hafa verið samþykktar eða ekki.

 

Sviðsstjórar:

Baldvin Ringsted, sviðsstjóri verk- og fjarnáms (baldvin@vma.is)

Ómar Kristinsson, sviðsstjóri stúdentsprófsbrauta (omar@vma.is)

Harpa Jörundardóttir, sviðsstjóri brautabrúar og starfsbrautar (harpajora@vma.is)

 

Bestu óskir um gott gengi á vorönn 2018.