Fara í efni

Opnar kennslustofur í prófatíð

Opnar kennslustofur fyrir nemendur utan hefðbundins skólatíma. Frá 30. apríl sl. hafa kennslustofur í D-álmu (D01-D08) verið opnar fyrir nemendur til kl. 21 mánudaga - fimmtudaga á starfstíma skólans (lokadagur er sjúkraprófsdagar annarinnar). Skólinn verður ekki opinn 10. maí og 21. maí sem eru almennir frídagar. Nemendur geta farið í þessar stofur til að læra. Vert er að minna á að bókasafnið er opið til kl. 18 alla daga nema föstudaga. Gert er ráð fyrir því að nemendur gangi inn um inngang að vestan. Ekki er hægt að hafa allan skólann opinn. 

Til að þetta verkefni gangi vel þá þarf að ganga vel um og er nemendum treyst fyrir því. 

Eins er vert að minna nemendur á breytt fyrirkomu lag í lokaprófum. Nemendum ber að leggja persónuskilríki  með mynd á borð eða vinnustöð í upphafi prófs. Ef nemandi hefur ekki persónuskilríki með sér er heimilt að leita til prófhafa til staðfestingar um að nemandi sé skráður í áfanga. Ef ekki er hægt að staðfesta hver nemandi er, skal prófstjóri ákvarða hvernig tekið er á málinu.

Gangi ykkur vel!