Opið hús í VMA 29. apríl kl. 16:30-18:30
27.04.2026
Miðvikudaginn 29. apríl kl. 16:30-18:30 verður opið hús í VMA þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að koma í skólann og kynnast skólastarfinu, náminu og félagslífinu í skólanum.
Opið hús er árlegur viðburður í skólastarfinu þegar líða tekur að lokum vorannar. Starfsfólk og nemendur Verkmenntaskólans kynna fjölbreyttar námsleiðir og svara spurningum og öll rými skólans verða gestum til sýnis.
Nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla og forsjáraðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Starfsfólk og nemendur VMA hlakka til að sjá sem flesta á opnu húsi!