Fara í efni

Opið hús á listnáms- og hönnunarbraut í kvöld

Listsköpun nemenda á listnáms- og hönnunarbraut er fjölbreytt í meira lagi. Á opnu húsi í kvöld gefs…
Listsköpun nemenda á listnáms- og hönnunarbraut er fjölbreytt í meira lagi. Á opnu húsi í kvöld gefst kostur á að sjá eitt og annað sem hefur orðið til núna á vorönn.

Það líður að lokum vorannar, síðasti kennsludagur annarinnar er nk. föstudag, 15. maí. Eins og vera ber við annarlok er uppskerutími, lokaverkefni á nokkrum námsbrautum voru kynnt sl. föstudag og í kvöld, 13. maí, er komið að því að nemendur og kennarar á listnáms- og hönnunarbraut bjóði til  opins húss kl. 19:30 til 21:30 í húsnæði brautarinnar á efri hæð - gengið inn að norðan.

Það er fastur liður að bjóða gestum og gangandi á opið hús á listnáms- og hönnunarbraut í annarlok, þar sem gefst kostur á að skoða fjölmargt áhugavert sem nemendur á brautinni hafa skapað á önninni.