Fara í efni

Ómöguleikar í Listasafninu

Fastur liður í lok hverrar annar er að nemendur listnáms- og hönnunarbrautar sýna lokaverkefni sín. Næstkomandi laugardag, 9. maí, kl. 15:00 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri sýning tíu nemenda á listnáms- og hönnunarbraut. Hún ber yfirskriftina Ómöguleikar/Impossibilities og verður opin 9.-17. maí kl. 12-17. Þetta er tíunda árið sem lokaverkefnasýning nemenda á listnáms- og hönnunabraut er haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

Samhliða öðru námi til stúdentsprófs vinna nemendur á lokaönn á listnáms- og hönnunarbraut lokaverkefni á sínu sérsviði. Þeir vinna sjálfstætt að verkefnunum með því að útfæra eigin hugmyndir í þá miðla sem þeir kjósa. Verkin móta og þróa nemendur með rannsóknar- og tilraunavinnu í samstarfi við leiðsagnarkennarann og samnemendur og oft og tíðum taka þau miklum breytingum frá upphaflegri hugmynd til endanlegrar útkomu.

Nemendurnir tíu sem sýna verk sín á sýningunni í Listasafninu eru:

Alís Janey Elmarsdóttir
Annette J. de Vink
Bergdís „Maggi“ María Ásdísardóttir
Diljá Ísfold Sigurpálsdóttir (Dísfold)
Díana Sankla Sigurðardóttir
Eva Dís Þrastardóttir
Kristjana Bella Kristinsdóttir
Kristjana Mjöll Víðisdóttir
Neó Týr Hauks
Sara Sif Símonardóttir