Fara í efni

Ómar Magni er yngsti nýsveinninn í rafvirkjun á Íslandi!

Ómar Magni Halldórsson lauk námi frá VMA sl. vor og tók í framhaldinu sveinspróf í rafvirkjun. Í gær…
Ómar Magni Halldórsson lauk námi frá VMA sl. vor og tók í framhaldinu sveinspróf í rafvirkjun. Í gær fékk hann síðan sveinsbréfið sitt afhent í Hofi, aðeins sautján ára gamall.

Nítján rafvirkjar og fjórir rafeindavirkjar fengu afhent sveinsbréf sín við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gær. Meirihluti rafvirkjanna lauk námi sínu frá VMA sem og allir fjórir rafeindavirkjarnir.

Það sem vakti sérstaka athygli var að í hópi nýsveina í rafvirkjun var Ómar Magni Halldórsson sem mun vera yngsti rafvirkinn í sögunni á Íslandi sem fær afhent sveinsbréf í faginu, fæddur 14. nóvember 2008 og því aðeins sautján ára gamall.

Ómar Magni hóf nám í rafvirkjun í VMA haustið 2023, þá tæplega fimmtán ára gamall. Hann brautskráðist sem rafvirki sl. vor frá VMA og í júní, nokkrum dögum eftir brautskráninguna, þreytti hann sveinspróf í rafvirkjun. Sveinsbréfið var síðan afhent í gær. Ómar Magni vann í faginu á meðan hann var í VMA og safnaði því markvisst  því sem til þarf í ferilbók. Ómar býr á Svalbarðseyri en starfar á Rafeyri á Akureyri.

Verkmenntaskólinn óskar Ómari Magna til hamingju með þetta magnaða Íslandsmet og sendir öðrum nýsveinum árnaðaróskir með sveinsbréfin.

Það var skammt stórra högga á milli í rafdeild VMA í gær í því Þór Pálsson framkvæmdastjóri og Hafdís Reinaldsdóttir skrifstofustjóri Rafmenntar komu í heimsókn í VMA og færðu nýnemum í rafdeild hágæða vinnubuxur frá Helly Hansen. Að gjöfinni standa Rafmennt, RSÍ (Rafiðnaðarsamband Íslands) og SART (Samtök rafverktaka). Á þessari mynd eru nýnemar í rafdeild með buxurnar og á myndinni eru einnig Þór Pálsson og Hafdís Reinaldsdóttir frá Rafmennt og Ásta F. Flosadóttir aðstoðarskólameistari VMA.

Verkmenntaskólinn þakkar gefendum kærlega fyrir stuðninginn.