Fara í efni

Ólíkar leiðir í Deiglunni

Níu nemendur í kvöldskólanum sýna verk sín á vorsýningunni í Deiglunni um helgina.
Níu nemendur í kvöldskólanum sýna verk sín á vorsýningunni í Deiglunni um helgina.

Í vetur hefur listnáms- og hönnunarbraut VMA í fyrsta skipti boðið upp á fornám í sjónlistum í kvöldskóla. Nú við lok vorannar er uppskerutími og um helgina sýna níu nemendur nokkur verk sem þeir hafa verið að vinna í vetur – bæði á haust- og vorönn. Sýningin, sem ber yfirskriftina Ólíkar leiðir, verður í Deiglunni í Listagilinu á morgun, laugardaginn 3. maí, og sunnudaginn 4. maí kl. 14-17 báða dagana. Allir eru hjartanlega velkomnir á sýninguna.

Í kvöldskólanum var áhersla lögð á að opna gáttir inn í heim sjónlista og skapandi verklags og að afrakstur námsins nýtist nemendum við umsókn um nám hvort sem er í listum eða hönnun á háskólastigi.

Nemendurnir níu sem sýna eru:

Anna Maria Rudnicka-Ostrowska
Annette de Vink
Arnar Birgir Ólafsson
Ágústa Jenný Forberg
Guðrún Erla Guðmundsdóttir
Ingibjörg Ósk Pétursdóttir
Lísa Björk Gunnarsdóttir
Mayflor Perez Cajes
Sólveig Hólm Guðmundsdóttir