Þátttakan í ungmennaráði Samfés hefur gefið mér mikið
Erla María Hjartardóttir er á sinni fyrstu námsönn í VMA. Hún er fædd og uppalin á Akureyri og var í Oddeyrarskóla. Í VMA hefur hún tekið stefnuna á stúdentspróf og í framhaldinu stefnir hún að því að læra snyrtifræði í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og afla sér réttinda sem snyrti- og naglafræðingur. Þá muni æskudraumurinn rætast.
Til hliðar við daglegt nám í VMA er Erla María virk í ungmennaráði Samfés. Hún er nú á sínu öðru tveggja ára kjörtímabili, var fyrst kjörin til tveggja ára árið 2023 (var þá í áttunda bekk Oddeyrarskóla) og endurkjörin 2025. Erla mun því sitja í ungmennaráði Samfés í rúmt ár til viðbótar, til október 2027.
En hvað er ungmennaráð Samfés? Það er lýðræðislega kjörið landsráð ungs fólks sem starfar innan Samfés – landssamtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi. Hlutverk ungmennaráðs er fyrst og fremst að tryggja að rödd ungmenna heyrist í samfélaginu og að þau hafi raunveruleg áhrif á starf Samfés og málefni sem snerta ungt fólk.
Í ungmennaráð er skipað á landsmóti Samfés, sem verður næst haldið í Reykjanesbæ í október nk. Í því eru 30 fulltrúar, tveir úr hverju af tíu kjördæmum landsins eru kjörnir til tveggja ára og tíu til eins árs. Ráðið starfar á landsvísu og er ráðgefandi fyrir stjórn Samfés og segir Erla María að það komi saman að jafnaði sex sinnum á ári.
Ungmennaráð Samfés var fyrst sett á stofn fyrir tuttugu árum með það að markmiði að koma sjónarmiðum ungmenna á framfæri við Samfés, stjórnvöld og sveitarfélög. Ungmennaráðið tekur þátt í stefnumótun Samfés, vinnur að því að efla lýðræðisvitund ungs fólks og að auka virkni þess á sem flestum sviðum samfélagsins, auk þess að taka þátt í innlendu og erlendu samstarfi.
Erla María segir að frá því að hún tók sæti í ungmennaráði Samfés hafi sitt helsta áherslumál verið að öllum krökkum líði vel í sínum skólum og að raddir ungs fólks heyrist og á þeim sé tekið mark.
„Að sitja í ungmennaráði Samfés hefur gefið mér mikið og ég hef þroskast mikið á því að taka þátt. Og ekki síður hef ég kynnst fullt af krökkum sem hafa ólík sjónarmið og áherslur,“ segir Erla María og bætir við að hún hafi fengið tækifæri til þess að fara með öðrum krökkum úr ungmennaráði Samfés til Írlands í síðasta mánuði sem hafi verið lærdómsrík og eftirminnileg heimsókn. Þar segist Erla hafa kynnst sambærilegu starfi ungs fólks á Írlandi, sem hafi verið mjög fróðlegt. Írsku krakkarnir komi síðan til Íslands í næsta mánuði, 9.-11. október, á landsmót Samfés í Reykjanesbæ.
Fram undan er heilmikil vinna við undirbúning landsmótins, m.a. kemur Erla að undirbúningi ýmissa viðburða á mótinu. Í það heila sækja um fimm hundruð manns landsmótið, þátttakendur og starfsmenn.