Nýskipuð skólanefnd VMA

Mennta- og barnamálaráðherra hefur skipað nýja fulltrúa í skólanefnd VMA. Í nefndinni eru:
Katrín Sif Árnadóttir, Rósfríð Kristín Áslaugsdóttir og Sveinn Arnarson skipuð án tilnefndingar af ráðherra. Axel Grettisson og Ólöf Inga Andrésdóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Í skólanefnd eru þrír áheyrnarfulltrúar Hulda Þórey Halldórsdóttir formaður nemendafélagsins Þórdunu, Karen Malmquist fulltrúi kennara og Þorbjörg Ólafsdóttir fulltrúi foreldra. Kosið verður um nýja fulltrúa foreldra og kennara næsta haust.
Skólanefnd hélt sinn fyrsta fund í gær og var Sveinn Arnarson kosinn formaður.
Að fundi loknum var tekin mynd af skólanefnd ásamt skólameistara. Hulda Þórey og Katrín Sif voru í fjarfundi.
Skólameistari óskar nýrri skólanefnd velfarnaðar í sínum störfum næstu fjögur árin.