Fara í efni

Nýr hópur að hefja nám í matartækni

Nám í matartækni er kennt í fimm helgarstaðlotum og er kennslan bæði bókleg og verkleg.
Nám í matartækni er kennt í fimm helgarstaðlotum og er kennslan bæði bókleg og verkleg.

Þrettán nemendur hefja nám í matartækni í VMA núna á vorönn. Námið er sett upp sem lotunám og þess á milli eru nemendur í bóklegum fögum í fjarnámi og einnig eru unnin verkefni. Í það heila tekur námið þrjár annir og því lýkur með brautskráningu vorið 2025.

Marína Sigurgeirsdóttir kennari við matvælabraut VMA er aðalkennari og hefur umsjón með náminu en auk hennar kennir Ari Hallgrímsson, brautarstjóri matvælabrautar. Núna á vorönn eru bæði kenndar bóklegar og verklegar greinar í fimm helgarlotum, sú fyrsta verður síðustu helgina í janúar. Í lotunum er kennt frá kl. 13 á föstudögum og kl. 8 til 16:30 á laugardögum.

Í gegnum tíðina hafa nemendur víða að af landinu sótt nám í matartækni í VMA en að þessu sinni eru allir þrettán nemendurnir af Eyjafjarðarsvæðinu og eru þeir á aldursbilinu 30-57 ára. Einn þeirra hefur lokið grunndeild matvæla í VMA en aðrir hafa farið í gegnum raunfærnimat og þannig komist inn í þetta nám. Skilyrði fyrir raunfærnimati er að viðkomandi hafi starfað að lágmarki í þrjú ár í mötuneyti eða veitingarekstri – og á þetta við um alla þá sem nú hefja nám í matartækni. Auk fagnáms í verklegum og bóklegum áföngum sem nemendur taka í lotum og fjarnámi VMA þurfa þeir að hafa lokið áföngum í íslensku, ensku og stærðfræði á öðru þrepi.

Að brautskráningu lokinni er sótt um leyfisbréf og þar með starfsréttindi sem matartæknar til landlæknisembættisins. Í því felst m.a. heimild til þess að bera ábyrgð á rekstri mötuneyta.