Nýnemar í byggingadeild færðu Kjarnaskógi tvö útiborð að gjöf
Nýnemar í byggingadeild VMA afhentu í gær forráðamönnum Skógræktarfélags Eyfirðinga, sem sér um Kjarnaskóg, tvö útiborð að gjöf sem þeir höfðu smíðað. Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins þakkaði gjöfina og sagði að borðin muni nýtast mjög vel í skóginum.
Hér eru fleiri myndir sem Jóhann H. Þorsteinsson kennari tók.
Eins og allir vita er Kjarnaskógur/Naustaborgir einstök náttúruperla sem Akureyringar eru duglegir að njóta árið um kring. Og ekki bara Akureyringar því hróður þessa einstaka útivistarsvæðis hefur borist um land allt og því er ekki síður mikill fjöldi gesta sem sækir Akureyri heim sem leggur leið sína í Kjarnaskóg og nýtur alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Skógræktarfélag Eyfirðinga og starfsfólk þess á miklar þakkir skildar fyrir markvissa og glæsilega uppbyggingu í Kjarnaskógi á undanförnum árum.
Alla jafna bera gestir Kjarnaskógar virðingu fyrir þessari náttúruperlu og ganga vel um en þó bregður annað slagið út af þeirri reglu. Það gerðist t.d. í lok ágúst þegar hópur framhaldsskólanema á Akureyri fagnaði skólabyrjun og skildi eftir sig mikið rusl í skóginum. Umgengni sem fjarri því var til fyrirmyndar. Um þetta ræddu nemendur og kennarar í lífsleiknitíma í VMA og var það niðurstaða nemenda í byggingadeild að til að bæta fyrir þetta vildu þeir leggja sitt af mörkum. Þeir ákváðu að safna peningum meðal nemenda og starfsfólks VMA til þess að kaupa efni í tvö útiborð og færa Kjarnaskógi að gjöf. Í verkefnið var ráðist, stofnaður reikningur og fjármunum safnað í verkefnið en efniskostnaðurinn er um sextíu þúsund krónur. Efnið var keypt og eftir skóla sl. mánudag komu nemendur á fyrsta ári í byggingadeild saman og smíðuðu borðin undir handleiðslu Jóhanns H. Þorsteinssonar kennara. Verkið gekk fljótt og vel. Að afloknu góðu verki borðuðu nemendur saman pizzu.
Í gær var síðan komið að því að afhenda borðin í Kjarnaskógi. Haft var samband við SBA-Norðurleið um hvort fyrirtækið væri tilbúið að leggja verkefninu lið með því að skutla nemendum endurgjaldslaust í rútu inn í Kjarnaskóg til þess að afhenda borðin. Var það sjálfsagt mál og tók sjálfur forstjóri fyrirtækisins, Gunnar M. Guðmundsson, skutlið að sér. SBA-Norðurleið og Gunnari eru færðar einlægar þakkir fyrir. Við gjöfinni tóku Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, og Bergsveinn Þórsson skógarvörður.
Fyrir hönd nemenda afhenti gjöfina Þórarinn Karl Hermannsson. Hann sagði við þetta tækfæri:
Kæri Kjarnaskógur!
Ég heiti Þórarinn Karl og er nemandi í byggingadeild VMA. Við erum hér fulltrúar nýnema við VMA og viljum færa Kjarnaskógi tvo útiborð sem við höfum smíðað og safnað fyrir. Okkur finnst gaman að koma í Kjarna og viljum leggja okkar af mörkum til að gera góðan skóg enn betri.
Við gerum mistök en við gerum líka betur. Horfum fram á veginn, enginn bakkar hérna út. Takk fyrir okkur!
Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins, þakkaði gjöfina og sagði:
Ég er innilega glaður og stoltur af ykkur fyrir þetta framtak. Þegar maður gerir upp á bak er gott að gangast við því. Trúið mér, ég hef oft gert upp á bak og reynt að bæta úr með allskonar árangri. En ef maður reynir ekki, þá gerist ekki neitt.
Eldri borgarar koma oft til okkar hingað í skóginn og hafa kallað eftir fleiri slíkum borðum og því veit ég að þeir eiga eftir að dásama ykkur fyrir þetta framtak. Takk strákar, þið eruð magnaðir!