Fara í efni

Nýnemaferðir 25. og 26. ágúst

Nýnemar bregða á leik í nýnemaferðinni 2025.
Nýnemar bregða á leik í nýnemaferðinni 2025.

Á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst, og nk. miðvikudag, 26. ágúst, verða árlegar nýnemaferðir. Með nýnemum fer í ferðirnar hópur starfsmanna skólans; kennarar, stjórnendur, stuðningsfulltrúar og fulltrúar frá nemendafélaginu Þórdunu sem sjá um að halda uppi fjörinu með nýnemahópnum.

Nýnemum verður skipt á þessa tvo daga eftir umsjónarhópum og geta nemendur séð í Innu hver þeirra umsjónarkennari er. Allir verða að taka með góða skapið og keppnisskapið því boðið verður upp á ýmsar þrautir sem gefa stig. Það lið sem fær flest stig vinnur og fær verðlaun.

Þriðjudagur 25. ágúst
Nemendur eftirtalinna umsjónarkennara fara í nýnemaferðina þriðjudaginn 25. ágúst:
Hrafnhildur S. Sigurgeirsdóttir (HRS)
Ásþór Sigurgeirsson (ÁSS)
Baldvin Ringsted (BAR)
Kristján Bergmann Tómasson (KBT)
Anna Rósa Friðriksdóttir (ARF)
Harpa Jörundardóttir (HJD)
Urður María Sigurðardóttir (UMS)
Guðríður Sveinsdóttir (GSV)

Miðvikudagur 26. ágúst
Nemendur eftirtalinna umsjónarkennara fara í nýnemaferðina miðvikudaginn 26. ágúst:
Katrín Júlía Pálmadóttir (KJP)
Helga Jónasdóttir (HEL)
Arnsteinn Ingi Jóhannesson (AIJ)
Harpa Hermannsdóttir (HHD)
Hafdís Björg Bjarnadóttir (HBB)
Inga Dís Árnadóttir (IDÁ)
Borghildur Ína Sölvadóttir (BÍN)
Jóhann Hjaltdal Þorsteinsson (JHÞ)
Björk Jónsdóttir (BJÖ)

Þann dag sem nemendur fara í nýnemaferðina eiga þeir að mæta í skólann kl. 8:30 og verður lagt af stað með rútum um kl. 9:00. Þann dag sem nemendur verða í nýnemaferðinni verða þeir skráðir í leyfi. Umsjónarkennarar veita nemendum frekari upplýsingar um mætingu og fyrirkomulag. Gert er ráð fyrir að hóparnir verði komnir aftur til Akureyrar um kl. 14:30–15:00. Þann dag sem nemendur eru ekki í nýnemaferðinni mæta þeir í skólann samkvæmt stundatöflu.

Mikilvægt er að nemendur klæði sig eftir veðri. Í ferðinni gefst tækifæri til að fara í vatn og út á báta og því má gera ráð fyrir að einhverjir blotni – viljandi eða óviljandi! Gott er því að hafa meðferðis aukaföt eða sundföt, vaðskó og handklæði.

Boðið verður upp á grillaðan hamborgara og einn drykk í ferðinni. Þau sem telja sig þurfa meira yfir daginn eru hvött til að taka með sér nesti.

Markmið nýnemaferða er ávallt hið sama; að gefa nemendum tækifæri til að kynnast betur, bæði innan umsjónarhópsins og nýnemahópsins í heild. Ferðin hefur jafnan verið skemmtilegur og eftirminnilegur hluti af upphafi skólaársins þar sem nemendur eiga góðan dag saman, kynnast nýju fólki og ný vinasambönd geta orðið til.

Ef eitthvað er óljóst og einhverjar spurningar vakna er nýnemum og/eða forráðamönnum bent á að hafa samband við umsjónarkennara.