Fara í efni

Nýnemadagar í bongóblíðu

Nýnemar í blíðviðrinu á Hólvatni.
Nýnemar í blíðviðrinu á Hólvatni.

Í þessari viku voru árlegir nýnemadagar. Í gær fór hluti nýnemanna í ferð að Hólavatni í Eyjafjarðarsveit og átti þar frábæran dag í ótrúlegri sumarblíðu, líklega var gærdagurinn besti dagur sumarsins hér norðan heiða. Seinni nýnemadagurinn var í dag þegar hinn hluti nýnemanna fór að Hólavatni og naut dagsins við leik og störf í ægifögru umhverfi.

Á Hólavatni brugðu nemendur og starfsmenn VMA á leik með ýmsum hætti og nutu veðurblíðunnar út í ystu æsar. Síðan var að sjálfsögðu boðið til grillveislu.

Þetta voru ánægjulegir nýnemadagar. Annað kvöld verður nýnemaball í Sjallanum og verður hitað upp fyrir það með grillmat í hádeginu á morgun. 

Nýnemadagur 30. ágúst - albúm 1
Nýnemadagur 30. ágúst - albúm 2
Nýnemadagur 31. ágúst - albúm 1
Nýnemadagur 31. ágúst - albúm 2
Nýnemadagur 31. ágúst - albúm 3