Fara í efni

Nemendur í byggingadeild fá vinnufatnað og persónuhlífar

Nýnemar í byggingadeild í nýja fatnaðinum. Með þeim á myndinni eru Ásta Flosadóttir aðstoðarskólamei…
Nýnemar í byggingadeild í nýja fatnaðinum. Með þeim á myndinni eru Ásta Flosadóttir aðstoðarskólameistari VMA, Halldór Gauti Helgason verslunarstjóri Ferro Zink Akureyri og Helgi Valur Harðarson brautarstjóri byggingagreina í VMA.

Sem fyrr hefur Verkmenntaskólinn tekið höndum saman með Byggiðn - félagi byggingamanna og Ferro Zink Akureyri um niðurgreiðslu vinnufatnaðar og persónuhlífa fyrir nýnema í byggingadeild, sem eru um 40 talsins. Listaverð þessa vinnufata- og persónuhlífapakka, sem nemendur fengu afhenta í dag, er sem næst 100 þúsund krónur. Kostnaðarskiptingin er sú að hver nemandi greiðir 16.000 kr., VMA greiðir 16.500 kr. pr. nemanda, Byggiðn greiðir 15.000 kr. og síðan veita birgjar rausnarlegan afslátt.

Í umræddum fata- og persónuhlífapakka er hjálmur, gleraugu, heyrnahlífar, stuttermabolur, hettupeysa, vinnujakki, smíðabuxur, öryggisskór og rykgríma. Þessu til viðbótar færði Ferro Zink hverjum nemanda að gjöf belti og hnéhlífar.

Halldór Gauti Helgason, verslunarstjóri Ferro Zink Akureyri, og Sigmundur Magnússon, starfsmaður Byggiðn Akureyri, færðu nemendum byggingadeildar VMA í gær þennan veglega fata- og persónuhlífapakka. 

Ekki þarf að hafa um það mörg orð að þessi stuðningur Byggiðn, Ferro Zink og birgja við skólann og nemendur í byggingadeild skiptir gríðarlega miklu máli og er til marks um mikla velvild og hlýhug. Fyrir það vill Verkmenntaskólinn þakka alveg sérstaklega. Skólinn leggur höfuðáherslu á öryggismál í kennslu nemenda í byggingadeild sem og á öðrum verklegum brautum skólans og því er afar mikilvægt að nemendur venjist strax á að nota nauðsynlegan öryggisbúnað. Til dæmis gerir byggingadeild þá kröfu til nemenda að þeir klæðist öryggisskóm í verklegu námi sínu.