Nemendur af íþrótta- og lýðheilsubraut í Lillehammer/Gausdal
Þrettán nemendur af íþrótta- og lýðheislubraut VMA og þrír kennarar, Ólafur H. Björnsson, Auður Inga Ólafsdóttir og Kristjana Pálsdóttir Margrétardóttir, voru í Lillehammer/Gausdal í Noregi í síðustu viku. Ferðin var styrkt af Erasmus+ styrkjaáætlun ESB.
Skólinn sem nemendur og kennarar VMA heimsóttu er Gausdal videregående skole (GVS), sem er framhaldsskóli skammt frá Lillehammer. Í þessum skóla eru tvær námsbrautir, annars vegar íþróttabraut með um 180 nemendur og hin er félags- og náttúru-/félagsfræðibraut til stúdentsprófs. Skólinn hefur til afnota, allan skóladaginn, tvær íþróttahallir, gervigrasvöll og hlaupabrautir. Auk þess er líkamsrækt í skólanum. Nemendur og kennarar VMA gistu í Lillehammer og tóku strætó í Gausdal.
Gestgjafarnir höfðu sett upp skemmtilega dagskrá alla vikuna og var fyrsta daginn, mánudag í síðustu viku, fyrst og fremst kynning á skólanum í Gausdal og einnig var m.a. spilað blak með nemendum í Gausdal. Síðar þennan sama dag gafst hópnum frá VMA tækifæri til þess að skoða sig aðeins um í Lillehammer og það var líka gert á þriðjudag. Þá komu nemendur GVS til Lillehammer og gengu með VMA nemendum aðeins um bæinn og síðan lá leiðin í stórt safn, Maihaugen, þar sem bæði er sögusafn og ólympíusafn, en Vetrarólympíuleikarnir voru haldnir í Lillehammer í febrúar 1994. Eftir heimsókn á safnið var farið á afar áhugaverða náms- og starfssýningu fyrir framhaldsskólanemendur.
Á miðviku- og föstudögum vinna nemendur GVS í þeim hópum sem að þeir hafa valið sér þegar þeir sækja um skólavist. Á afrekssviði geta nemendur valið um knattspyrnu (sem flestir velja), handbolta, skíðagöngu-/skíðaskotfimi og „free-ski“.Þeir nemendur sem ekki stefna á afrekssvið í sinni íþrótt býðst að velja á milli tveggja hópa í „breddeidrett“ - almennings- eða lýðheilsuíþróttir. Einnig er hægt að velja um boltaíþróttahóp þar sem farið er í gegnum valdar boltaíþróttir og grunnþjálfunarhóp þar sem áherslan er á grunnþjálfunareiginleikana eins og styrk, þol, liðleika, snerpu, hraða og samhæfingu. Nemendur VMA tóku þátt í nokkrum þessum hópa – m.a. í handbolta og fótbolta.
Í viðbót við verklegu tímana unnu nemendur skólanna saman í vinnuhópum að ýmsum verkefnum.
Ólafur H. Björnsson segir að íþrótta- og lýðheilsubraut VMA sé að sumu leyti lík íþróttabrautinni í Gausdal. Það sem þó greini þær að séu mun fleiri verklegir tímar í Gausdal. Ólafur segir að nemendur VMA hafi verið skóla sínum til sóma í ferðinni og nemendur beggja skólanna hafi náð vel saman í þeim verkefnum sem unnin voru.