Fara í efni

Myndlist í brjáluðu húsi

Gústav Geir Bollason myndlistarmaður.
Gústav Geir Bollason myndlistarmaður.

Gústav Geir Bollason, myndlistarmaður, heldur þriðjudagsfyrirlestur í dag, 22. nóvember, kl. 17:00-17:40 í Ketilhúsinu á Akureyri. Yfirskrift fyrirlestursins er Myndlist í brjáluðu húsi. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Í fyrirlestri sínum fjallar Gústaf Geir um sögu, tilgang, áfanga og markmið Verksmiðjunnar á Hjalteyri. Hann segir m.a. frá ólíkum verkefnum og hugmyndinni að baki þeim.

Gústav Geir Bollason útskrifaðist frá MHÍ 1989, var gestanemi við Magyar Képzőművészeti Egyetem í Búdapest veturinn 1989-90 og útskrifaðist með Diplôme National Supérieur d'Expression Plastique frá École Nationale Supérieure d'Arts de Paris Cergy 1995. Hann starfar við myndlist (teikningar, kvikmyndir og rýmisverk),verkefna- og sýningarstjórnun og kennslu auk þess að hafa umsjón með Verksmiðjunni á Hjalteyri.

Fyrirlesturinn er í röð fyrirlestra síðdegis á þriðjudögum í vetur og er um að ræða samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri. Fyrirlesturinn í dag er sá næstsíðasti á þessu ári en síðasti fyrirlesturinn verður að viku liðinni.