Fara í efni

Móttaka nýnema VMA 17. ágúst kl. 13

Frá nýnemaferð ágúst 2021
Frá nýnemaferð ágúst 2021

Í dag, miðvikudaginn 17. ágúst kl. 13.00 verður móttaka nýnema í VMA. Nemendur mæta í samkomusal skólans; Gryfjuna (best að koma inn um innganga að norðan eða austan) og þar verður tekið á móti nýjum nemendum skólans. Að sjálfsögðu mega foreldrar/forráðamenn mæta og vera með á kynningunni.  

Byrjað verður á því að hittast á sal en síðan hitta nemendur umsjónarkennara sína í kennslustofum. Þar verður farið yfir ýmisar upplýsingar er varða skólastarfið og fyrstu skrefin í VMA. 

Hlökkum til að fagna skólabyrjun með nýjum hóp nemenda í VMA.

Sigríður Huld, skólameistari VMA