Miðbæjar-Darri og Þriðja augað
Dómnefnd í ritlistasamkeppni Ungskálda valdi smásögur eftir Katrínu Díu Gunnlaugsdótur, Miðbæjar-Darri og Þriðja augað, í annað og þriðja sæti samkeppninnar. Þetta kom fram í hófi á Amtsbókasafninu síðdegis í gær.
Miðbæjar-Darri
„Jæja ... hvað segirðu, Lovísa mín?“
Guðrún Hanna kemur æðandi inn í herbergið og ég slaka sjálfkrafa á öxlunum. Hún tekur um upphandlegginn á mér og kreistir hann létt á meðan hún brosir hlýlega til mín. Það er langt síðan ég talaði við hana en gerði það mikið þegar ég var að flytja úr bænum og upp á Skaga. Dragtin sem hún er í lítur út fyrir að vera sérsaumuð á hana og hún er það líklegast. Hún sest í bláa hægindastólinn við rúmbríkina og færir ferköntuðu gleraugun ofar á nefið.
„Manstu hvað við töluðum um í símann í gærkvöldi?“ spyr hún og dregur rautt klemmuspjald upp úr töskunni.
„Já.“ Ekki eins og við töluðum um neitt áhugavert. Hún sagðist ætla að hitta mig í dag í létt spjall, skipaði mér að sofa og borða vel.
„Flott, elskan. Við skulum bara byrja á...“
Létt bank á hurðina truflar og ung kona í hvítum slopp kemur inn haldandi á drapplituðum bakka. Á honum eru hnífapör, plastglas og diskur með stórri snitselssneið, þremur kartöflum og hrásalati. Hún ætlar að aðstoða mig við að reisa mig upp í rúminu en ég gef henni merki um að ég geti gert það sjálf. Ekki eins og ég sé eitthvað líkamlega slösuð.
„Lovísa ...“ byrjar Guðrún Hanna aftur eftir að unga konan lokar á eftir sér. „Nú skulum við spjalla bara svolítið í rólegheitunum. Ertu til í það?“
„Já.“
„Getur þú sagt mér frá laugardagskvöldinu eins og þú manst eftir því?“
„Hvar á ég að byrja?“
„Hvernig byrjaði kvöldið til dæmis?“
„Sko. Ég bauð vinkonum mínum heim klukkan svona fimm. Við ætluðum að græja okkur saman fyrir afmæli vinar okkar úr skólanum.“
„Fjölbrautaskóla Vesturlands, er það ekki?“
„Jú.“
„Manstu hvaða vinkonum þú bauðst til þín?“
„Söndru og Þórgunni.“ Ég flissa yfir þessari spurningu. Auðvitað man ég það.
„Mamma þín sagðist hafa pantað fyrir ykkur að borða en farið svo sjálf til systur sinnar í mat. Manstu hvað þið fenguð ykkur?“
„Pítsu. Frá Vitanum.“ Af hverju er hún að spyrja út í það?
„Ókei, flott. Fóruð þið svo beint í afmælið?“
„Já.“
„Hvað voruð þið lengi þar áður en þið keyrðuð í bæinn?“ Guðrún Hanna krassar aðeins efst á blaðið en skiptir pennanum svo út fyrir annan.
„Kannski svona tvo og hálfan.“
„Og af hverju komuð þið hingað til Reykjavíkur?“
„Vorum bara fara á djammið, sko.“
„Var það þín hugmynd?“
„Nei. Söndru langaði á Skólastofuna af því strákurinn sem hún er að tala við vinnur þar.“
„Skólastofan? Hvar er hún?“
„Bankastræti. Í skotinu fyrir aftan túristabakaríið. Efstu hæð. Man ekki númer hvað húsið er. Get gúgglað það ef þú vilt.“
„Nei, nei, allt í góðu. Hvað gerðist svo í miðbænum? Manstu það?“
„Já ... Sko, ég drakk ekki mikið ef þú ert að gefa það í skyn. Fékk mér kannski tvo, þrjá drykki í afmælinu. Ekkert niðri í bæ.“
„Allt í lagi. Förum aðeins yfir þetta. Þið vinkonurnar hittist, farið í afmæli og ákveðið svo að keyra í bæinn á djammið ... manstu hver keyrði?“
„Þórgunnur. Hún er alltaf edrú.“
„Og svo fóruð þið á Skólastofuna ... hvað svo?“
„Það var þá sem ég hitti hann ... eða sá hann.“
„Sást hvern, elskan?“
„Darra.“
„Darra!?“ Guðrún Hanna færði gleraugun upp á kollinn.
„Já, manstu, besti vinur minn áður en ég flutti upp á Skaga. Bjuggum í s...“
„Já, já, já, já, ég man alveg eftir honum,“ segir hún án þess að líta upp frá því sem hún skrifar hjá sér.
Stundarþögnin rofnar þegar Guðrún Hanna lítur aftur upp og losar um fótleggina einungis til þess að krossleggja þá aftur í hina áttina.
„Hefur hann ekkert ... hefurðu ekkert hitt hann ... eftir að þú fluttir úr bænum?“
„Nei, nefnilega ekki neitt.“
Guðrún Hanna starir á rúmgaflinn áður en hún lítur aftur á mig.
„Manstu alveg eftir þessum árum, þegar þú bjóst í Mjóstrætinu?“
„Já, væntanlega. Ég var alveg tólf ára þegar við fluttum þaðan.“
„Einmitt, einmitt. Hérna ... segðu mér bara aðeins frá Darra og ykkar sambandi.“
Guðrún Hanna lyftir upp annari hendinni til merkis um að ég eigi orðið.
„Já, bara þetta basic. Við bjuggum í sama húsinu þegar við vorum yngri. Ég á miðhæðinni og hann í risinu. Við lékum okkur svolítið saman. Ég myndi kannski ekki segja að við höfum verið bestu vinir en við vorum alveg góðir vinir. Fórum í leiki, sögðum hvort öðru oft sögur og ráfuðum mikið um bæinn að fylgjast með fólkinu. Oft mikið að sjá þar.“
„Hafið þið ekkert hist eftir að þú fluttir upp á Skaga?“
„Nei, nefnilega ekki. Hef ekki séð hann síðan ég veit ekki hvenær. Ég man að hann varð alveg rosalega sár yfir því að ég skyldi vera að flytja. Hann kom ekki einu sinni í kveðjupartýið sem mamma og pabbi héldu fyrir svona helstu vini í bænum.“
„Svo hittist þið niðri í miðbæ þarna á laugardagskvöldinu rúmum átta árum seinna. Hvernig gerðist það? Hafði hann samband við þig eða hafðir þú samband við hann?
„Nei, nei, ekkert svoleiðis. Sandra og Þórgunnur fóru að pissa, ég var að passa borðið og svo sé ég kunnuglegt andlit í glugganum á móti mér. Hann hafði eiginlega ekkert breyst. Stóð bara þarna og brosti til mín. Mér finnst ótrúlegt að hann hafi þekkt mig, ég var dökkhærð síðast þegar hann sá mig. En já, án þess að pæla eitthvað í því rauk ég bara út til hans.“
„Hvernig var það? Að hitta hann?“
„Ég var auðvitað ógeðslega glöð að sjá hann. Þetta var eins og að hitta bróður minn sem ég hafði ekki séð í hundrað ár.“
„Bauðstu honum svo að djamma með ykkur eða?“
„Nei, ég fór ekkert aftur inn á Skólastofuna. Skildi meira að segja jakkann minn eftir. By the way veistu eitthvað um hann? Svona dökkblár gallajakki.“
„Nei, því miður,“ svarar hún og lítur í kringum sig. „Hvað gerðuð þið Darri eftir að þið hittust?“
„Við löbbuðum bara um að spjalla um allt og ekkert. Bara eins og þegar við vorum lítil.“
„Um hvað töluðuð þið?“
„Vá, hvar á ég að byrja? Það var eins og við værum í hraðaspurningum. Hann spurði mig út í Akranes og vini mína þar. Ég sagði honum líka frá Monsu. Hún varð fyrir bíl í fyrra. Ég talaði lengi um hana.“
Guðrún Hanna skýtur til mín samúðarsvip.
„Hvernig enduðuð þið í Mjóstræti?“
„Ég er eiginlega ekki alveg viss. Ég týndi mér alveg í spjallinu. Áður en ég vissi af vorum við bara komin upp að gamla húsinu okkar.“
Ég hinkra áður en ég held áfram.
„Sko, þetta er mjög ólíkt mér, ég lofa ... en við kíktum inn um gluggana, sáum að allt var slökkt þannig að við spenntum einn upp og fórum inn. Þú mátt ekki vera reið við mig. Þetta var ekki mín hugmynd og ég var bara eitthvað svo mikið in the moment, skilurðu?“
„Skil þig. Af hverju gerðuð þið það samt?“ Guðrún Hanna hallar höfðinu og tekur af sér gleraugun.
„Æi, ég bara veit það ekki. Ég hef aldrei gert neitt svona áður, ég lofa. Við vorum bara að deila minningum um einhverja feluleiki og gistikvöld og Darri stakk upp á því að við skoðuðum okkur um fyrst enginn virtist vera heima.“
„Og hvað gerðuð þið inni í húsinu?“
Ég finn fyrir sterkum sviða í nefinu og fyrir aftan augun, reyni að kyngja kökkinum í hálsinum sem verður bara til þess að kjálkinn stífnar upp. Ég gríp fyrir andlitið.
„Allt í lagi, elskan. Gefðu þér bara smá tíma. Hérna.“
Ég snýti mér í bréfsnifsið sem Guðrún Hanna réttir mér og fæ mér vatnssopa áður en ég held áfram.
„Við settumst í sófann í stofunni sem ég held að mamma og pabbi hafi selt með húsinu. Hann er alla vega alveg eins og gamli sófinn okkar. Við sitjum þar og rifjum upp fullt af einhverju skemmtilegu. Svo allt í einu, alveg upp úr þurru, verður hann bara ógeðslega reiður.“
„Reiður? Við þig þá?“
„Já ... eða ég held það. Þetta var svo skrýtið. Eina sekúnduna sitjum við hlæjandi saman og þá næstu öskrar hann eitthvað sem ég skil ekkert í og verður allur rauður og fjólublár í framan. Áður en ég veit af tekur hann með báðum höndum.“
Ég kyngi og anda ofan í maga.
„Báðum höndum utan um hálsinn á mér. Hann bókstaflega heldur mér uppi á hálsinum ... og ég næ ekki andanum í einhvern tíma. Rétt áður en allt varð svart heyri ég öskur í Þórgunni og Söndru.“
***
Þórgunnur fylgist með uppstríluðu konunni hripa niður á blað og tekur sér málhvíld á meðan svo konan nái að skrifa niður það sem hefur þegar komið fram.
„Þú mátt alveg halda áfram,“ segir konan og horfir á Þórgunni.
„Já ... svo komum við út af klósettinu og hún var bara horfin. Samt var sko jakkinn hennar enn við borðið og töskurnar okkar á stólunum. Við leituðum heillengi inni á Skóló og þegar við fundum hana ekki þá fórum við að vera smá stressaðar.“
„Og hvernig funduð þið hana?“
„Ég fór inn á Vaktina og sá þá að hún var ...“
„Fyrirgefðu, hvað er Vaktin?“ spyr konan og ýtir við kassalaga gleraugunum sem hanga á nefbroddinum.
„Æi, þarna appið sem sýnir manni hvar vinir manns eru. Íslenska gerðin af Life360.“
„Skil þig. Fyrirgefðu, haltu áfram.“
„Ég kíki inn á Vaktina og sé prófílinn hennar Lovísu þarna hinum megin við Ingólfstorg. Ég rata ekkert alltof vel í miðbænum, sérstaklega ekki í myrkri, en við Sandra eltum bara prófílinn sem leiddi okkur að þessu gamla húsi þarna rétt hjá Fishersundi.“
„Og hvað er að eiga sér stað þegar þið komið að húsinu?“
„Við sjáum Lovísu hvergi þannig ég fer og kíki inn um gluggann og þar er hún. Það var mjög dimmt en ég sé að hún stendur á einhverjum sófa.“ Þórgunnur hagræðir sér í hægindastólnum og fær sér vatnssopa.
„Svo hoppar hún niður úr sófanum, eða ég hélt hún væri að fara að hoppa niður úr sófanum ... en hún snerti aldrei gólfið.“ Þórgunnur lokar augunum og andar djúpt.
„Það tók mig alveg smá stund að átta mig á því að hún hékk niður úr ljósakrónunni.“
Þögnin sem myndst á meðan konan skrifar á blaðið sitt er ekki beint þrúgandi en Þórgunni hefur alltaf þótt þagnir óþægilegar þannig að hún ræskir sig til að fylla upp í hana.
„Og þið sáuð engan annan en Lovísu þarna inni í húsinu, er það nokkuð?“
„Nei, bara Lovísu. Af hverju?“
Þórgunnur saug upp í nefið.
„Nei, ekkert. Bara að vera viss. Hvað gerðist svo?“
„Þetta var svo óraunverulegt. Ég var stjörf í nokkrar sekúndur áður en ég fattaði að mig væri ekki að dreyma og að ég þyrfti að gera eitthvað. Það var fullt af steinum þarna í kringum húsið, ég greip einn og barði í rúðuna þangað til hún brotnaði. Svo er ég alltaf með vasahníf í
töskunni á djamminu af því you never know. Ég notaði hann til að skera beltið úr ljósakrónunni. Fimmtán þúsund króna beltið sem Lovísa keypti úti í Frakklandi í sumar. Æ, hún verður örugglega tjúlluð.“
„Engar áhyggjur, hún er ekkert að pæla í því,“ segir konan og lokar pennanum sínum.
Þórgunnur andar örlítið léttar þó þessar áhyggjur hafi einungis verið toppurinn á ísjakanum.
„Heyrðu, ég held að við séum bara búnar í bili. Ég segi við þig eins og ég sagði við Söndru áðan; Nú skulið þið bara hlúa að ykkur og ég hitti ykkur svo á þriðjudaginn og við tökum follow-up spjall.“
Þórgunnur kinkar kolli, stendur upp og klæðir sig í úlpuna.
„Alveg rétt, á meðan ég man, veist þú nokkuð um jakkann hennar Lovísu? Dökkblár gallajakki.“
„Já, ég tók hann með þegar við Sandra fórum út af Skólastofunni. Hann er heima hjá mér.“
„Flotter, elskan. Ég læt hana vita. Þú þarft svo ekkert að loka á eftir þér. Sjáumst á
þriðjudaginn."
Þriðja augað
Það er unun að horfa á þig, Vala. Fylgjast með þér drekka úr sama, bláa kaffibollanum á hverjum morgni á sama tíma, á sama stað, sama hvaða dagur vikunnar það er. Sjá þig dandalast um á dökkbleika náttsloppnum á sunnudagsmorgnum með hárið í lausum hnút efst á höfðinu. Horfa á þig bíta varlega í ristuðu brauðsneiðina með græna jukkinu á, á hverjum einasta virka morgni. Fylgjast svo með þér ríða manninum þínum þegar þú hefur ekki fyrir því að draga fyrir. Eins og þú viljir áhorfendur. Það er alltaf eins. Sömu þrjár stellingarnar, einu sinni í viku, á fimmtudagskvöldum. Það er eini dagur vinnuvikunnar sem Hrafnkell kemur heim áður en þú ert sofnuð.
Í dag er þriðji laugardagur mánaðarins sem þýðir að þú átt von á vinahjónum ykkar í kvöldmat. Sömu þremur hjónunum og síðastliðin þrjú árin býst ég við.
Sjá þig. Snýst í endalausa hringi í kringum sjálfa þig að reyna að koma í veg fyrir að þú þurfir að bjarga kvöldinu með pantaðri pítsu. Þetta er alltaf eins, líkt og allt annað sem þú gerir. Þú finnur nýja og framandi uppskrift á internetinu sem þú heldur að eigi eftir að „slá í gegn“. Svo ertu alltaf komin í einhverja helvítis klípu þegar það er stutt í gestina. Stundum langar mig bara að koma yfir og hjálpa þér. Þú lærir aldrei af mistökum, Vala. Gerir þau frekar aftur og aftur. Fyrir hverjum ertu að reyna að sanna þig? Hrafnkeli? Vinum þínum? Eða kannski mér? Ég hef lengi haldið að þú vitir innst inni af vináttu okkar. Þú ert svo fullkominn vinur. Ónærgætin en á sama tíma svo vanaföst að það er mér auðvelt að vera vinur þinn.
Mér sýnist þú hafa opnað gjöfina frá mér í morgun. Þú ert alla vega óróleg. Vinir þínir eru komnir. Banka ekki einu sinni, valsa bara inn. Karlarnir setjast í sófann hjá Hrafnkeli sem er sjálfur nýkominn heim. Dökkhærðu konurnar tvær setjast við eyjuna en sú ljóshærða fer að hjálpa þér. Ég kannast nú við hana, þessa. Hún virðist svo glöð að sjá þig, faðmar þig þétt að sér. Af hverju leyfir þú henni það? Af hverju faðmar þú hana? Opnaðir þú gjöfina ekki í morgun? Ætlar þú að bíða þangað til eftir boðið? Nei, þú ert ekki þannig.
Miðað við viðbrögð gestanna ertu að hitta verulega í mark með matseldinni. Vel gert, Vala mín. En nú veit ég fyrir víst að þú opnaðir gjöfina í morgun. Brosið nær ekki til augnanna eins og vanalega og svo hefurðu ekki horft í augun á Hrafnkatli í allt kvöld.
Hvernig ætlar þú svo að fara að þessu? Dregur þú gjöfina kannski fram í kvöld og sýnir gestunum myndirnar frá mér? Módelin eru jú bæði þarna við borðið. Ekki jafn fáklædd og á myndunum en þó er konan í óþarflega flegnum kjól.
Elsku Vala, þú ert ótrúleg. Þú heldur andliti á meðan heimurinn þinn molnar hægt og rólega. Ég heyri í gestunum þínum yfir til mín. Þú hefur greinilega boðið upp á gott rauðvín. Hvert ertu að fara? Þarna ertu. Hvers vegna fórstu upp í herbergið þitt? Ertu kannski komin með nóg
af látunum í gestunum? Já, ég líka.
Þú rótar í náttborðsskúffunni þinni og dregur upp umslag sem ég kannast við. Þú ert að fara kíkja á gjöfina mína. Ég vissi að þú kynnir að meta hana. Vandaði mig mikið við myndatökuna. Dró meira að segja upp gömlu myndavélina sem ég keypti fyrir áratug síðan. Hún var rándýr á sínum tíma, enda hefur hún ekkert elst. Annað en þetta símadrasl sem ég þarf að endurnýja á ársfresti.
Þarna fer Hrafnkell á eftir þér upp í herbergið ykkar. Ertu að fara að sýna honum gjöfina? Eru þið kannski að fara að ríða? Hann lokar hurðinni á eftir sér, þetta stefnir í gott. Þú otar gjöfinni að honum. Þessu hef ég beðið eftir. Hann horfir á myndirnar mínar í skamma stund áður en hann hrifsar þær af þér. Hann er að rífa myndirnar mínar! Helvítis fíflið. Veit hann ekki hvað glanspappír kostar? Stattu nú á þínu, Vala mín. Gerðu eitthvað, ekki standa bara þarna. Gerðu eitthvað. Fyrir mig. Fyrir okkur. Hrafnkell gengur að glugganum og kippir í gluggatjöldin
þannig að þau fljúga fyrir rúðuna.
Það eru komnar nokkrar mínútur frá því Hrafnkell dró fyrir og nú er hann kominn niður að skála við vini ykkar. Hvar ert þú, Vala mín? Þarna ertu. Kemur léttfætt niður stigann, ferð inn í eldhús og nærð í kökuna. Hvað ætli þið hafið verið að gera? Þú ert hálf rytjuleg um hárið og rauð í kinnunum. Ég þoli ekki þegar þið dragið fyrir.
„Helduru að ég hafi svo ekki fundið hann þarna á miðju faktorígólfinu allan útataðan í einhverju rándýru rauðvíni?“
Ég kreisti fram hláturinn í takt við stemninguna í stofunni þegar Gassi talar um bróður sinn í Frakklandi.
Hrafnkell lofaði. LOFAÐI að hann væri hættur þessu. Hvernig í fokkanum getur hann gert mér þetta? Og með Diljá af öllu fólki í heiminum. Og hvernig gat HÚN gert mér þetta? Hvernig gat hún líka gert Gassa þetta? Hvernig geta þau svo setið hér og látið eins og ekkert hafi gerst?
Ætli allir aðrir við borðið viti þetta nema ég? Ætli Gassi viti þetta? Nei, pottþétt ekki. Ég lyfti glasinu í tilraunaskyni og skála fyrir samverunni, vináttunni og þeim öllum. Horfi svo vandlega í kringum mig á fólkið sem eiga að kallast bestu vinir mínir. Sleppi því að horfa á Hrafnkel. Get það ekki. Býður við honum. Fylgist vel með því hvort ég sjái vantraust eða jafnvel vorkunn í augunum á einhverju þeirra. Ekkert. Ekki einu sinni frá Diljá. Ekkert annað en ljóskubros og augnaráð í samráði við það.
Ég er aðallega sár út í Diljá. Bjóst alveg eins við þessu frá Hrafnkeli en alls ekki henni. Hvað ætli þetta sé búið að vera í gangi lengi? Ég fékk fjórar myndir frá fjórum mismunandi skiptum.
Anda djúpt. Bæði inn og út um nefið. Ég get ekki meira. Afsaka mig. Ekki það að eitthvert þeirra tæki eftir því að ég myndi láta mig hverfa. Ég fer upp í herbergi, opna náttborðsskúffuna. Tek upp umslagið og horfi aðeins aftur á myndirnar, kalla í Hrafnkel. Raddirnar frammi hækka með hverri mínútunni, þau eru öll búin að drekka of mikið fyrir minn smekk.
„Hvar fékkstu þetta?“ Hrafnkell horfir reiður á myndirnar og mig til skiptis.
„Kemur þér ekki við.“ Fatta um leið að ég er búin að vera svo upptekin af þessu öllu saman að ég hef ekki einu sinni pælt í því hvaðan myndirnar komu. Já eða frá hverjum.
Hrafnkell ýtir húninum niður þegar hann lokar hurðinni. Hann hrifsar myndirnar af mér, rífur þær í tætlur og treður bútunum í vinnutöskuna sína. Svo æðir hann að glugganum og dregur fyrir. Augnabliki síðar finn ég ekki fyrir neinu nema brennandi sviða í vinstri kinninni og heyri ekkert annað en hátíðnihljóð. Mig svimar svo að ég læt mig falla á rúmið.
„Svo ertu heppin að maturinn var jafn góður og hann var,“ hreytir hann hljóðlega í mig og sperrir vísifingurinn rétt fyrir framan nefið á mér.
Ég veit nákvæmlega hvað það þýðir og finn að hnúturinn í maganum losnar aðeins.
Hann horfir ekki einu sinni á mig heldur opnar hurðina og gengur niður til gestanna. Ég þerra tárin, lít í spegilinn, laga mig aðeins til og dríf mig aftur niður.
„Er ekki kominn tími á eftirréttinn?“ spyr ég gestina, blikka ýkt og geng rösklega inn í eldhús þegar ég heyri bæði fagnaðarlæti og jákvæðar undirtektir.