Fara í efni

Matur er mannsins megin

Nemendur í grunndeild matvælagreina fá m.a. innsýn í matreiðslu og framreiðslu.
Nemendur í grunndeild matvælagreina fá m.a. innsýn í matreiðslu og framreiðslu.

Ein af verknámsbrautunum í VMA er matvælabraut þar sem er kennt grunnnám og síðan geta nemendur sérhæft sig í ólíkum greinum, t.d. matreiðslu, framreiðslu og kjötiðn. Einnig er matartækni kennd í lotunámi á matvælabraut.

Yfirleitt eru sem næst tuttugu nemendur í grunndeild matvælagreina, sem er tveggja anna nám, og það er líka raunin núna við upphaf þessa skólaárs. Í verklega náminu fá nemendur innsýn í eitt og annað sem nýtist þeim ef þeir halda áfram í matvælagreinum en einnig eru mörg dæmi þess að nemendur fara í grunndeildina og læra fyrir lífið, ef svo má segja, því sú þekking sem nemendur safna í sarpinn varðandi t.d. matreiðslu, bakstur, framreiðslu o.fl. nýtist öllum.

Þegar litið var inn í verklegan tíma nemenda í grunndeild matvælagreina voru þeir að spreyta sig á matreiðslu kjúklingaleggja og einnig var súpa og brauð á matseðlinum. Í næsta verklega tíma verður eitthvað allt annað á matreiðsluseðlinum. Þannig safnast í sarpinn heilmikil þekking á matreiðslu. Hinn hluti nemendanna var á sama tíma í tíma hjá Hebu Finnsdóttur og lærði þar eitt og annað varðandi framreiðslu.

Matvælabraut VMA er önnur tveggja matvælabrauta í framhaldsskólaum á landinu, hin er í MK. Því hefur matvælabraut VMA ríku hlutverki að gegna og nemendur hennar koma víða að. Á síðasta skólaári var auk grunndeildarinnar boðið upp á 2. bekk í matreiðslu og á þessu skólaári er ætlunin að fullmennta bæði framreiðslu- og matreiðslumenn. 

Kunnara er en frá þurfi að segja að á síðustu árum hefur orðið bylting í veitingastaðaflóru landsins, stöðunum hefur fjölgað mjög og fjölbreytnin er mun meiri en var hér á árum áður. Þetta á rætur að rekja til þess að Íslendingar fara nú mun oftar á veitingastaði en áður og þá má ekki gleyma þeim aukna fjölda ferðamanna sem hingað leggur leið sína í samanburði við fyrir um tveimur áratugum. Þetta þýðir að það er gríðarleg spurn eftir fagmenntuðu fólki í bæði matreiðslu og framreiðslu á veitingastöðum landsins og ekki bara þar því fjölmargir með fagmenntun á þessu sviði starfa í mötuneytum fyrirtækja og stofnana og einnig hjá birgjum sem selja matvælatengdar vörur.