Fara í efni

Vanda þarf til verka við viðhald eldri húsa

Matthías Kristjánsson húsasmíðameistari miðlar þekkingu sinni um viðhald og endurbyggingu gamalla hú…
Matthías Kristjánsson húsasmíðameistari miðlar þekkingu sinni um viðhald og endurbyggingu gamalla húsa til verðandi húsasmiða.

Í liðinni viku var Matthías Kristjánsson húsasmíðameistari á Akureyri með tvo fyrirlestra um viðhald gamalla húsa fyrir nemendur á lokaönn í húsasmíði. Matthías talaði út frá ljósmyndum af nokkrum eldri húsum sem hann hefur unnið við á undanförnum árum.

Breytingar og viðhald á eldri húsum er einn af þeim áföngum sem nemendur í húsasmíði taka í námi sínu. Á margan hátt má segja að um sé að ræða nokkuð sérhæfða smíðavinnu sem skiptir miklu máli að sé leyst úr á faglegan og réttan hátt. Oft snýr viðhald á húsum að ýmsum kvillum sem upp koma vegna raka eða leka og nái hann að skjóta rótum kemur fram fúi í timbri eða jafnvel mygla, sem er óværa sem getur valdið heilsutjóni og ómældu fjárhagslegu tjóni.

Vatnið finnur sér alltaf leið og oft og tíðum getur það verið fljótt að skemma út frá sér en stundum tekur það lengri tíma. Viðhaldsverkefnin vegna rakavandamála eru jafn ólík og þau eru mörg en oft tengjast þau þökum. Oft nægir að skipta um járn og pappa en stundum nær rakinn að skemma svo mikið út frá sér að nauðsynlegt reynist að skipta um þökin í heilu lagi - sperrurnar þar með taldar.

Það var afar fróðlegt að hlýða á reynslumikinn smið eins og Matthías sem hefur sérhæft sig í breytingum og viðhaldi eldri húsa. Hann benti á eitt og annað sem hann hefur rekist á og lýsti hvaða aðferðir hann hefur með tímanum lært að dugi best. Sýndi Matthías nokkur dæmi um hús í eldri bæjarhlutum Akureyrar, m.a. í Innbænum og á Eyrinni, þar sem hann hefur lagt hönd á plóg í viðgerðum og endurbyggingu.

Helgi Valur Harðarson, brautarstjóri byggingadeildar, segir mikinn feng að því að fá reynslumikinn smið eins og Matthías til þess að ræða þessi mál og miðla þekkingu sinni til verðandi húsasmiða. Hann segir að Matthías hafi haft frumkvæði að því að koma og segja nemendum frá þessum hlutum, honum sé afar annt um að vel og rétt sé staðið að málum þegar kemur að viðhaldi og endurbyggingu gamalla húsa. Einnig hafi hann komið og miðlað þekkingu sinni varðandi veggklæðningar til nemenda kvöldskólans í húsasmíði. Vill Helgi Valur koma á framfæri bestu þökkum og kveðjum til Matthíasar fyrir hans góða framtak, bæði nemendur og kennarar hafi lýst mikilli ánægju með leiðsögn hans og fræðslu.