Fara í efni

Matsönn 2013

Átta nemendur stunduðu nám á matsönn að þessu sinni. Matsönn er tilboð fyrir 10. bekkinga sem vilja flýta fyrir sér í námi í VMA. Sex af átta stunduðu nám í ensku en einnig var stærðfræðin vinsæl. Náttúrufræði, félagsfræði, íslenska og danska voru líka á matseðlinum. Sá nemandi sem tók flestar einingar lauk 16 einingum og er því búinn með fyrstu önnina í framhaldsskóla. Að meðaltali luku nemendur 5 einingum.