Fara í efni

Marta Nordal ræðir um leiklist í þriðjudagsfyrirlestri

Marta Nordal leikhússtjóri.
Marta Nordal leikhússtjóri.

Í dag, þriðjudaginn 21. febrúar, kl. 17:00-17:40 heldur Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, þriðjudagsfyrirlestur undir yfirskriftinni Atvinnuleikhús á landsbyggðinni.

Marta Nordal hefur verið leikhússtjóri LA frá 2018 og jafnframt hefur hún leikstýrt nokkrum stórum og eftirminnilegum uppfærslum hjá félaginu; Kabarett (2018), Mutter Courage (2019)Vorið vaknar (2020)Skugga Sveini (2022) og Chicago (2023) sem nú er sýnt fyrir fullu húsi á fjölum Samkomuhússins og fær afbragðs góða dóma.

Marta hefur starfað sem leikkona hjá Leikfélagi Akureyrar, Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Hún stofnaði leikhópinn Aldrei óstelandi árið 2010 ásamt Eddu Björgu Eyjólfsdóttur. Hópurinn hefur sett upp sýningar á borð við Fjalla-EyvindLúkasOfsa og Natan.
Auk þess hefur Marta leikstýrt fjölda verka fyrir útvarp. Hún leikstýrði söngleiknum Rocky Horror, sem sýndur var í Borgarleikhúsinu.

Marta er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA-gráðu í leiklist frá The Bristol Old Vic Theatre School. Hún hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa innan sviðslista, hún sat m.a. í stjórn Leikfélags Reykjavíkur og í stjórn Íslenska dansflokksins, auk þess sem hún var forseti Sviðslistasambands Íslands 2013-2017.

Þriðjudagsfyrirlestrar er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, MA og Myndlistarfélagsins á Akureyri.
Aðgangur er ókeypis.